194 Tímarit lögfvæöinga ræða. Sem dæmi má nefna, að A hefur þegið fé af B fyrir að skrifa meiðyi'ðagrein um C. Ef C höfðar meiðyrðamál gegn A og fær hann dæmdan til refsingar, eru fyrir hendi skilyrði laganna um ávinning, sem aflað hefur verið með broti. Vafinn er um réttarfarsatriði, þ. e. hvort upptaka muni verða dæmd í einkarefsimálinu. Eftir setningu laga nr. 27/1951, sbr. 6. tölul. 2. gr. þeirra, verður opinbera ákæruvaldið væntanlega einnig, þegar svo stendur á, að gera kröfu um upptöku í opinberu máli. 3. Þegar dæma skal um, hvort ágóða hafi verið aflað með broti, verður að aðgæta, hvort orsakasambandið milli brotsins og ágóðans sé nægilega náið. Þessu skilyrði er að sjálfsögðu fullnægt, þegar viðtaka ágóðans er einn þáttur í verknaðarlýsingu brotsins, svo sem er um auðgunarbrot, sölu varnings yfir lögmæltu hámarksverði o. s. frv. Sama gildir, þegar afbrotið er beint tilefni auðgunarinnar. Svo er t. d. þegar sökunautur hefur þegið fyrirfram greiðslu fyrir að fremja brot eða tekið við framlögum til að stand- ast kostnað af framkvæmd þess. Hins vegar er vafasamt, hvort upptæk verður gerð greiðsla, sem sökunautur hefur fengið, eftir að hann framdi brotið, en án þess að hann hafi fengið loforð fyrir henni eða átt von á henni fyrir- fram. Ef slík viðtaka er í sjálfu sér refsiverð, ber þó að gera féð upptækt. Þegar hagnaður af broti er aðeins óbeinn, verður hann yfirleitt ekki gerður upptækur. Ef sökunautur hefur t. d. varið ólöglegum ávinningi til kaupa á fasteign, sem síðar hefur hækkað í verði, þá mundi hinn upphaflegi ágóði vera gerður upptækur, en ekki sá gróði, sem leiddi af verðhækkun fasteignarinnar. 4. Þá kemur til athugunar, til hvaða verðmæta upptakan nái og hvernig beri að ákvarða þau. Hafa verður í huga, að ákvæðið nær aðeins til ágóða, sem enginn á löglegt til- kall til, en um það verður síðar rætt. Samkvæmt ástæðum þeim, sem liggja til grundvallar ákvæðinu, skiptir ekki máli, í hverju ágóðinn er fólginn, en um framkvæmd og áhrif upptökunnar koma að sumu leyti mismunandi reglur til greina, eftir því hvort um er