198 Tímarit lögfröinga fyrir 1200 ki\, en selur hana aftur fyrir 1500 kr., þá er spuming, hvort gera skuli upptækar 500 kr. eða 300 kr. Hæstiréttur Noregs hefur svarað þessu á þá leið, að upp- tæka beri að gera hærri f járhæðina. Rökstuddi hann það á þá leið, að sölugildi vörunnar í höndum sökunauts hafi ekki verið meira en hámarksverðið. Hann hafi haft frjálst val um það, hvort hann seldi vöruna eða ekki, en þar sem hann tók þann kost að selja hana, hafi ólöglegur ágóði hans numið mismun á söluverðinu og hámarksverðinu. Ef ólöglegur ágóði hefur verið fólginn í einstökum mun- um, en þeir eru ekki lengur fyrir hendi, mun rétt að leggja venjulegt söluverð þeirra til grundvallar jafnvirðisupp- töku. Upptaka á jafnvirði muna er heimil, þó að þeir hafi farizt af hendingu eða sökunautur eyðiiagt þá, eftir að brot var framið. Ef hlutur hefur hins vegar farið forgörð- um við framkvæmd brotsins, er ekki rétt að dæma jafn- virðisupptöku, því að hluturinn hef ur þá aldrei orðið ágóði í höndum sökunauts. Það er athugandi, að hin upptæka fjárhæð þarf alls ekki að svara til skaðabótakröfu, sem sá, er misgert var við, kynni að eiga á hendur sökunaut. Um ákvörðun skaðabótakröfu gilda aðrar reglur en um ákvörðun upptækrar fjárhæðar. 5. Þá er það einnig skilyrði fyrir upptöku ólöglegs ávinn- ings, að um sé að tefla muni eða ávinning, sem enginn á löglegt tilkall til. Ef ágóðans hefur verið aflað með þeim hætti, að enginn einstakur aðili hefur beðið tjón af því, er ofangreindu slál- yrði augljóslega fullnægt. Sem dæmi um það má nefna tilbúning og sölu vöru, sem er extra commercium. En þó að sökunautur hafi auðgazt á kostnað annars manns, getur atvikum verið svo háttað, að sá aðili eigi ekki neina lög- varða endurgreiðslukröfu eða skaðabótakröfu á hendur sökunaut. Svo mundi vera, ef fjárútlátin eru hlutdeild í brotinu, t. d. framlag til framkvæmdar þess eða greiðsla fyrir það, eða sjálfstætt brot, t. d. fémúta til embættis- manns. Sama gildir, ef tilefni f járútlátanna er þannig, að endurheimta f járins í dómsmáli bryti í bága við almennt