Finim lögfræðirit. Árín 19481952 hafa komið út fimm íslenzk lögfræði- rit, sem öll eru næsta þarfleg. Fjögur þeirra eru ætluð til kennslu í háskólanum, en ið fimmta er ætlað almenningi til fræðslu. Hér á eftir verður rita þessara getið í röð eftir útkomu aldri. Eiginlegur ritdómur á þeim er ekki á mínu færi, því að þau f jalla öll að öllu eða mestu leyti um efni utan þeirra greina. sem eg hef helzt fengizt við. Samt sem áður vil eg geta þeirra að nokkru til þess að vekja athygli lagamanna á þeim, því að þeir munu yfirleitt græða mikið á lesti'i þeirra. Hlaðbúð, sem Ragnar hrl. Jónsson stýrir, hefur með út- gáfu lagarita tekizt á hendur mikið og veglegt verkefni, sem sennilega flytur ekki með sér mikinn auð, en verður vonandi forlaginu til sóma og öðrurn til hagræðis, og þá einkum laganemum. Ritin, sem hér skal nefna, eru þessi: I. Ólaftir Lárusson: Kaflar úr kröfurétti. Hlaðbúb'. Reykjavík 19^8. 1 hagfræðadeild háskólans skal veita fræðslu um ýmis atriði lögfræða, bæði í svonefndri almennri lögfræði (um tilorðningu réttarákvæða, flokkun þeirra, aðalatriði varð- andi lögskýringu o. fl.) og í helztu atriðum kröfuréttar og félagaréttar, sbr. reglugerð háskólans nr. 47/1942 19. gr. Höf. kenndi fyrstu árin þessa grein og samdi kennslubók, sem var f jölrituð, en var gengin upp, þegar bók þessi var prentuð. Kennslubók handa nemendum, sem ekki hafa þá lögfræðiþjálfun, sem ætla má, að venjulegir laganemar hljóti smámsaman, er í rauninni erfiðara að semja en handa almennum lögfræðinemum. 1 bók sinni verður höf. að stikla á aðalatriðum almenna hluta kröfuréttarins, og verður því að sleppa fjölmöi'gu, sem greint er í kennslubók- um handa almennum laganemum. Höf. hefur tekizt þetta