Tímarit lögfræðinga - 01.01.1970, Blaðsíða 61
slakað væri á uni skilyrði samkvæmt 3. mgr. 13. gr., að
því er þessa menn snerti, enda var og síðar dregið mjög
úr kröfum í þessum efnum. Árið 1928, sbr. 1. nr. 19 14/6
f'i'á því ári, var skilyrðið um, að yfirdómslögmenn þyrftu
að inna ofangreinda próframi af hendi innan 3ja ára frá
því, að Hæstiréttur tók til starfa, fellt niður. Ekki er kunn-
ugt um, að sú heimild hafi verið notuð, enda komu þar
aðeins fáir menn til greina.
Hins vegar hafa víðtækar breytingar verið gerðar á al-
mennum skilyrðum til þess að geta öðlast réttindi til mál-
flutnings fyrir Hæstarétti og mjög í þá átt að auðvelda
lögmönnum þá leið.
Skráin ber með sér, að alls liafa 150 lögmenn öðlast rétt
til málflutnings fyrir Hæstarétti. Þess ber þó að gæta, að
margir þeirra hafa litið sem ekki flutt mál fyrir réttinum,
heldur sinnt öðrum störfum. Fjöldi þeirra, sem í raun
stunda málflutning við Hæstarétt, er því miklu minni en
skráin segir til mn.
Á það má og benda, að á síðari árum hefur fjölgunin
orðið miklu meiri en áður. T. d. má nefna, að á 25 fyrstu
starfsárum dómsins fengu 30 réttindin, en 120 á síðara 25
ára tímabilinu.
Tímcirit lögfræðinga
59