Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.12.1977, Blaðsíða 6

Tímarit lögfræðinga - 01.12.1977, Blaðsíða 6
Arnljótur Björnsson, prófessor ALMENN SKAÐABÓTALÖG Á NORÐURLÖNDUM Efni í höfuðdráttum 1. Sögudrög ....................................................bls. 168 2. Almennt um skaðabótalögin ...................................— 171 3. Norsku skaðabótalögin frá 1969 ..............................— 173 4. Sænsku skaðabótalögin frá 1972 ..............................— 177 5. Lauslegur samanburður á norsku og sænsku lögunum og íslenskum bótareglum ..................................................— 182 6. Helstu nýmæli laganna .......................................— 187 7. Hvað hefur gerst með setningu norrænu laganna? ..............— 191 1. SÖGUDRÖG Skaðabótarétturinn er, svo sem kúnnugt er, það svið lögfræðinn- ar, sem styðst einna minnst við settan rétt. Annars staðar á Norður- löndum hefur orðið breyting á þessu. í Noregi, Svíþjóð og Finnlandi hafa nýlega verið sett almenn lög um skaðabætur. Danir og Islending- ar búa aftur á móti enn að mestu við ólögfestan skaðabótarétt. Þau almennu skaðabótalög, sem hér um ræðir, eru þessi Noregur: Lov om skadeserstatning 13. júní 1969 (nr. 26), sbr. breyt- ingar með lögum 25. maí 1973 (nr. 26) og 13. febrúar 1976 (nr. 1). Svíþjóð: Skadestándslagen (1972:207), ásamt síðari breytingum. Lögin eru prentuð í heild með áorðnum breytingum í Svensk författningssamling 1975:404. Sjá ennfremur breyt- ingu í SFS 1975:1357. Finnland: Skadestándslag nr. 412 1974. Það eru mikil tíðindi, að þessi lög skuli hafa verið sett. Þar sem þeirra hefur ekki verið getið sérstaklega á prenti hér á landi, þykir rétt að kynna aðalefni þeirra. Reyndar er ekki vansalaust, að svo lang- ur tími skuli líða, án þess að íslensk lögfræðitímarit birti fréttir af slíkri lagasetningu. 168

x

Tímarit lögfræðinga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.