Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.11.1978, Blaðsíða 57

Tímarit lögfræðinga - 01.11.1978, Blaðsíða 57
Ávíð o£ dreif FRÁ FUNDI RÍKISSAKSÓKNARA NORÐURLANDA 1978 Ritstjóri Tímarits lögfræðinga hefur beðið mig um að rita „svolítinn frétta- pistil" í tímaritið um fund rikissaksóknara Norðurlanda, sem haldinn var í Reykjavík dagana 11. og 12. september 1978. Ég vil eigi mælast undan þvi enda á ég hinum ágæta ritstjóra þökk að gjalda fyrir leiðbeiningar hans um mikilvægan þátt í haldi fundarins — þó að segja megi að sitthvað af því, sem gerist á fundum þessum sé nánast mál þeirra einna, sem þar bera saman bækur sínar. Frá því á árinu 1966 hafa ríkissaksóknarar Norðurlanda komið saman til fundar nær árlega. Á þeim hafa verið rædd margvisleg málefni, sem ákæru- vaidið varðar, svo sem breytingar og þróun afbrota, réttarfar og refsingar, framkvæmd laga á sviði sakamálefna, æskilegar og fyrirhugaðar breytingar á löggjöf í þeim efnum, svo og ýmisleg vandamál, sem upp koma í störfum þeirra, sem ákæruvald hafa á hendi. Hinn markverðasti atburður í samskiptum ríkissaksóknaranna er ótvírætt samstarfssamningur þeirra um saksókn í öðru ríki Norðurlanda en því, sem afbrot hefur verið framið i. Samningur þessi var undirritaður i Osló 6. febrúar 1970 en honum var breytt lítillega í Helsingfors 12. október 1972 og aftur í Stokkhólmi 23. nóvember 1973. Fundir hafa tvisvar verið haldnir hér á landi. i fyrsta skipti hinn fjórði fundur árið 1971 og nú í annað skipti hinn tíundi fundur í september 1978. Á þeim fundi voru mættir — auk aðstoðarmanna — ríkissaksóknarar allra Norður- landanna, þ.e. Per Lindegaard frá Danmörku, Risto Leskinen frá Finnlandi, Laurits Dorenfeldt frá Noregi, Magnus Sjöberg frá Svíþjóð svo og greinar- höfundur. Á fundinum voru til umræðu eftirtalin málefni: 1) Vátryggingarsvik, 2) Afbrot mannfjölda eða hóps manna, 3) Minniháttar afbrot útlendinga og 4) Tiðni og breyting afbrota seinustu árin. Lagðar voru fram stuttar greinargerðir um þessi efni. Hér á eftir verður gerð stutt grein fyrir því, sem fram var lagt af islands hálfu þó að eigi hafi verið stórvægilegt. I) Vátryggingarsvik. Þetta málefni var til umræðu að beiðni sænska ríkissaksóknarans. Skýrði hann frá því að í Svíþjóð væri nú til vel skipulögð starfsemi manna, sem beindist að því að svíkja fé úr hendi vátryggingarfélaga og lýsti hann áhyggj- um sínum af þessari þróun mála. 151
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Tímarit lögfræðinga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.