Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.05.1984, Blaðsíða 52

Tímarit lögfræðinga - 01.05.1984, Blaðsíða 52
Ávíð og dreif RITSTJÓRASKIPTI Sú breyting varð á ritstjórn Tímarits lögfræðinga um síðustu áramót, að undirritaður tók við ritstjórastarfinu af Þór Vilhjálmssyni, forseta Hæstaréttar, sem gegnt hefur starfinu af miklum myndarskap síðan 1975 og næstu tvö árin á undan ásamt Theodór B. Líndal, prófessor. Mér er það einkar Ijúft að færa forvera mínum alúðarþakkir fyrir fórnfúst og árangursríkt starf í þágu Tímaritsins og Lögfræðingafélagsins, en svo skemmtilega vill til, að ég átti nokkurn hlut að ráðningu Þórs sem ritstjóra á þeim tíma, sem ég gegndi for- mennsku ( félaginu. Engar stórvægilegar breytingar eru fyrirhugaðar á Tímaritinu. Fræðirit- gerðir verða uppistaðan eins og hingað til. Tímaritið hlýtur þó ætíð að bera nokkurt svipmót af ritstjóranum á hverjum tíma. Verður það að koma í Ijós í fyllingu tímans, hver áhrif undirritaðs verða til mótunar. Tvennt vil ég nefna nú, sem til nýjunga telst. /Etlunin er að birta fleiri stuttar greinar en tíðkast hefur, um afmörkuð fræðileg efni, einstök mál, hugmyndir eða stefnuatriði, allt á lögfræðilegum grundvelli, en þó gjarna í tengslum við þjóðfélagsum- ræður, þegar tilefni gefst. Með þessu fyrsta hefti ársins 1984 er hleypt af stokkunum nýjum þætti með yfirskriftinni ,,Af vettvangi dómsmála“. Er að þvi stefnt, að í hverju hefti verði allrækileg fræðileg úttekt á einum dómi, að jafnaði einhverjum íslenskum hæstaréttardómi (ásamt úrlausn héraðs- dóms), þótt aðrar dómsúrlausnir komi einnig til álita. Yfirskriftin er sú sama og Hákon Guðmundsson, fyrrum yfirborgardómari og hæstaréttarritari, gaf hinum vinsælu útvarpsþáttum sínum. Er dómsmálaþættinum nýja valið þetta nafn i heiðurs skyni við Hákon heitinn og í samráði við Hjördísi, dóttur hans. Allar hugmyndir og tillögur um efnisval og framsetningu eru vel þegnar. Tilskrif um þessi efni sem og fræðiritgerðir og smærri greinar má senda í Lögberg, Háskóla íslands við Suðurgötu, eða heim til ritstjóra, Bræðraborgar- stíg 15, 101 Reykjavík. Jónatan Þórmundsson FRÁ SAKFRÆÐIFÉLAGI ÍSLANDS Þann 29. nóvember sl. var haldinn aðalfundur Sakfræðingafélags íslands. Starfsemi félagsins hefur legið niðri siðan 1973 með þeirri undantekningu, að félagið hélt ásamt öðrum tvær ráðstefnur á árunum 1977 og 1978. Á aðalfundi voru samþykktar tvær lagabreytingar. í fyrsta lagi var nafni félagsins breytt í Sakfræðifélag íslands og í öðru lagi, að stjórn félagsins 46
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Tímarit lögfræðinga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.