Ægir

Árgangur

Ægir - 01.10.1994, Blaðsíða 31

Ægir - 01.10.1994, Blaðsíða 31
Frá tæknideild (TFF). 29. september sl. var Guðbjörg ÍS 46 afhent frá Flekkefjord Slipp & Maskinfabrikk A/S, Flekkefjord í Noregi, en skipið kom til heimahafhar 19. október sl. Skipið ernýsmtði nr. 151 hjá Flekkefjord Slipp & Maskinfabrikk, en skrokkur skipsins er smíðaður hjá Kvina Verft A/S. Skipið er hannað af Skipa- tœkni h.f., Reykjavík. Guðbjörg ÍS er nítjándi skuttogarinn sem stöðin smíðar fyr- ir íslendinga, og er pá ótalinn einn skuttogaraskrokkur fyrir innlenda aðila. Þar aferu þrír þeirra smíðaðir fyrir sömu út- gerð og hafa borið nafnið Guðbjörg ÍS, hin fyrsta afhent árið 1974 (sk.skr.nr. 1363) og önnur árið 1981 (sk.skr.nr. 1579). Skrokkar allra þessara tuttugu skuttogara eru smíðaðir hjá Kvina Verft, sem annast hefur þann þátt fyrir stöðina. Guðbjörg ÍS er frystitogari með flakavinnslu og mjöl- vinnslu, auk rcekjuvinnslubúnaðar, og er fyrsti skuttogarinn með slíkum fullvinnslubúnaði, sem sérstaklega er smíðaður fyrir innlenda aðila. Vinnslubúnaður er sá umfangsmesti og fullkomnasti í íslensku fiskiskipi. Kœli- og frystikerfi skipsins er með ammoníak sem kœlimiðil í stað freons, sem er óson- eyðandi, og er aðeins einn togari í fiskiskipaflotanum með slíkan kœlimiðil. Þá er skipið búið þremur togvindum, þannig að unnt er að draga tvö troll samtímis. Miðað við skrokkstœrð (rúmtölu) og nýju mœlingareglum- ar er skipið þriðja stœrsta skip íslenska ftskiskipaflotans, ívið minna en Amar HU og Svalbakur EA, en þessi þrjú skip em breiðustu skip ftskiskipaflotans, eða 14.00 m, en smáfrávik í dýpt að þilfórum, smíðalengd og mestu lengd. Guðbjörg er búin aflmestu aðalvél fiskiskipaflotans, um 5000 hestöfl. Hin nýja Guðbjörg ÍS kemur í stað Guðbjargar ÍS (1579), 594 rúmlesta skuttogara, sem smíðaður var árið 1981 og lengdur árið 1988. jafnframt hverfur úr rekstri skuttogarinn Rán HF (1507), sem keyptur var til landsins árið 1978. Guðbjörg ÍS er í eigu Hrannar h.f. á ísafirði. Skipstjórar á skipinu eru Guðbjartur Ásgeirsson og Ásgeir Guðbjartsson og yfirvélstjóri er Baldur Kjartansson. Framkvœmdastjóri útgerð- ar er Guðmundur Guðmundsson. Almenn lýsing Almennt: Skipiö er smíðað úr stáli samkvæmt reglum og undir eftirliti Det Norske Veritas í flokki * 1A1, Stern Trawler, Ice C (skrokkur Ice 1B), * MV. Skipið er skuttogari með tveimur þilförum milli stafna, perustefni, skutrennu Mesta lengd..................................... 68.25 m Lengd milli lóðlína (HVL)....................... 59.25 m Lengd milli lóðlína (perukverk)................. 58.35 m Breidd (mótuð) ................................. 14.00 m Dýpt ab efra þilfari............................. 8.60 m Dýpt að neðra þilfari............................ 5.80 m Eigin þyngd...................................... 2445 t Særými (djúprista 5.80 m)........................ 3076 t Burðargeta (djúprista 5.80 m) .................... 631 t Lestarrými (frystilest)........................... 836 m3 Lestarrými (mjöllest)............................. 143 m3 Brennsluolíugeymar (svartolía).................. 452.6 m3 Brennsluolíugeymar (gasolía) .................... 64.3 m3 Ferskvatnsgeymar ............................... 104.6 m3 Sjókjölfestugeymar .............................. 68.4 m3 Brúttótonnatala.................................. 2172 BT Rúmlestatala .................................... 1225 Brl Ganghraöi (reynslusigling) ...................... 15.1 hn Skipaskrárnúmer ................................. 2212 ÆGIR OKTÓBER 1994 31

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.