Tímarit lögfræðinga - 20.11.1993, Blaðsíða 40
Benedikt Bogason
er dómarafulltrúi í Hafnatfirði
AF VETTVANGI DÓMSMÁLA
Benedikt Bogason:
HÆSTARÉTTARDÓMUR UM RIFTUN GREIÐSLU MEÐ ÓVENJU-
LEGUM GREIÐSLUEYRI
í XX. kafla laga nr. 21/1991 um gjaldþrotaskipti o.fl. er að finna réttarreglur
um riftun ráðstafana þrotamanns. Þær reglur eru í öllum aðalatriðum óbreyttar
frá því, sem mælt var fyrir um í VIII. kafla eldri gjaldþrotalaga nr. 6/1978.
í 1. mgr. 134. gr. gildandi gjaldþrotaskiptalaga er að finna heimild til að rifta
greiðslu þrotamanns á skuld, sem greidd hefur verið síðustu sex mánuði fyrir
frestdag með óvenjulegum greiðslueyri. Að þessu leyti er ákvæðið óbreytt frá
því, sem var í 1. mgr. 54. gr. laga nr. 6/1978.
Þann 18. nóvember 1993, gekk dómur Hæstaréttar í málinu nr. 247/1990:
A gegn þrotabúum Verslunarinnar V sf., E og M. í dómi þessum reyndi á,
hvort skuld hefði verið greidd með óvenjulegum greiðslueyri. Hér mun fjallað
um dóminn, en áður þykir ástæða til að gera almennt grein fyrir riftun
ráðstafana þrotamanns á þessum grundvelli og öðrum dómum, er einkum hafa
þýðingu varðandi þann ágreining, sem var til úrlausnar í umræddu dómsmáli.
ÓVENJULEGUR GREIÐSLUEYRIR
Samkvæmt 1. mgr. 134. gr. gjaldþrotaskiptalaga er unnt að krefjast riftunar
á greiðslu skuldar á síðustu sex mánuðun fyrir frestdag ef greitt var með
óvenjulegum greiðslueyri.
Regla 1. mgr. 134. gr. er hlutlæg regla, eins og flestar riftunarreglur XX.
kafla laganna. Þannig skiptir ekki máli, hvort skuldari var ógjaldfær þegar
greiðslan átti sér stað eða hvort viðtakanda var eða mátti vera kunnugt um
fjárhagsörðugleika skuldara.
38