Ægir

Árgangur

Ægir - 01.04.1997, Blaðsíða 15

Ægir - 01.04.1997, Blaðsíða 15
„Svona tölur hafa aldrei sést í mjöliðnaðinum" segir Teitur Stefánsson, framkvæmdastjóri Félags íslenskra fiskmjölsframleiðenda um verðmæti mjölframleiðslunnar í fyrra Á loðnumiðunum undir lok vetrarvertíðarinnar. Breytingar í nótaveiðiskipaflotanum eiga líka sinn pátt í aukinni verðmcetasköpun uppsjávarveiða- og vinnslu. Mynd: Þorgeir Baldursson „Jú, þaö má með sanni segja að hljóð- ið í mjölframleiðendum sé með besta móti þessa dagana," segir Teitur Stef- ánsson, framkvæmdastjóri Félags ís- lenskra fiskmjölsframleiðenda. Félag- ið hélt aðalfund sinn á dögunum og þar kom skýrt fram hversu vel hefur gengið í greininni að undanförnu. „Ef við lítum yfir farinn veg þá var síðasta ár gríðarlega gjöfult og fram- leiðslan á árinu 1996 sú mesta í sögu fiskimjölsiðnaðarins í landinu. Þá voru framleidd rúmlega 400 þúsund tonn af mjöli og lýsi og útflutningsverðmæti var á bilinu 15-16 milljarðar króna. Það em tölur sem menn hafa aldrei séð fyrr. Verksmiðjurnar hafa líka verið að fá meira á hvert tonn sem segir að verð- mæti framleiðslunnar er að aukast frá því sem verið hefur á undanförnum árum," segir Teitur. Heimsmarkaðsverð á fiskimjöli er hátt um þessar mundir og það skýrir að hluta til hærra afurðaverð en inn í þró- unina spila líka þær endurbætur sem em að verða í verksmiðjunum sjálfum. „í nokkuð langan tíma hefur verið stöðugt verð á mjöli og lýsi. Reyndar datt lýsi aðeins niður síðastliðið sumar en náði sér fljótlega strik aftur. Það sem hefur verið að gerast er að iðnaðurinn hér á landi hefur verið að þróast, verk- smiðjurnar að stækka og takast á við framleiðslu á verðmætara mjöli. En því til viðbótar er atriði sem ekki má gleyma og það em fiskiskipin sjálf. Þau hafa líka verið að stækka og það hefur kannski gert að við höfum náð meiru af útgefnum kvóta en áður." Vetrarvertíðin skilaði 750 þúsund tonnum af loðnu og úr því magni má gera ráð fyrir að hafi skilað sér um 180- 190 þúsund tonn af afurðum. Teitur metur það lauslega svo að verðmæti þessa mjöls sé um 8 milljarðar króna og út frá þeim tölum er hægt að sjá að árið 1997 kann að verða enn stærra fyrir mjöliðnaðinn, gangi væntingar eftir varðandi síldveiðar í vor og sumar og loðnuveiðar í haust og vetur. „Við vitum samt af reynslunni að það er margt sem getur gerst i sjónum og dæmin sanna að væntingarnar ganga ekki alltaf eftir. Árið 1991 veidd- ust t.d. ekki nema 259 þúsund tonn af loðnu allt árið og útflutningsverðmæti þess árs var ekki nema um þrír milljarð- ar. Þetta sýnir bara hversu gríöarlegar sveiflurnar geta verið en að sönnu er góðæri þessi misserin," segir Teitur. Hann telur ekki ástæðu til að óttast að fyrirtækin leggi út í óhóflegar fjárfest- ingar þó vel gangi nú um stundir. Ekki megi heldur gleyma því að fyrirtækin fjármagni fjárfestingarnar með öðrum hætti en áður þegar þau gefi út ný hlutabréf en vissulega þurfi þau að standa hluthöfum sínum skil á arði af fjárfestingum sínum. „En staðan er sú að það er búið að byggja nú þegar upp margar verksmiðj- ur í landinu og þar með er búiö að nýta meöbyrinn til að ganga í tímabæra endurnýjun. Það má segja að úreltur búnaöur hafi verið farinn að standa fyr- irtækjunum fyrir þrifum í sinni verð- mætasköpun," segir Teitur Stefánsson. ÆGIR 15

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.