Ægir

Árgangur

Ægir - 01.04.1997, Blaðsíða 16

Ægir - 01.04.1997, Blaðsíða 16
„Erum á eilífum flótta undan þorskinum" segir Jón Björn Vilhjálmsson skipstjóri á Andra KE-46 Á bryggjunni í Sandgerði: Laugardagur og dagróðrabátarnir að tínast inn í Sandgerðishöfn eftir blíðviðrisdag á sjó. Eftirtekjan hjá sumum er rýrari en daginn áður en menn eru glaðir enda framundan frídagur. Sumir eru með rígvœnan þorsk og. allir eru þeir sammála sjómennirnir um að það sé ekki þeirra mesti höfuðverkur að ná þorskinum - kannski miklu fremur að forðast hann. Ægir brá sér um borð í Andra KE og heilsaði upp á skipstjórann í brúnni, Jón Björn Vilhjálmsson. „Núna er bara þorskur út um allt og allir á eilífum flótta undan honum. Við eigum 70 tonna kvóta og hann gengur auðveldlega upp án þess að maður sæki sérstaklega í þorskinn. Þorskurinn kemur með þegar við erum á kola; skráp og sandkola. Þær tegundir eru ekki bundnar i kvóta en ég get ekki séð að þær þoli þessa sókn því það fara allir sem eru í vandræðum með þorsk á flatfiskveiðar með dragnót. Þetta gengur að flafiskinum dauðum. Mér sýnist ekki vera neitt vit í öðru en setja kvóta á flatfiskveiðarnar líka því að öðruvísi verður ekkert hægt aö hafa hemil á þeim," segir Jón Björn. Hann segir það staðreynd að bátaflotinn sé of stór og varla geti öðruvísi farið en að hann minnki. Margir haldi útgerðinni gangandi á leigukvóta. „Þessi leigukvóti er auðvitað ekkert annað en neyðarbrauð en menn halda sér gangandi á þennan hátt." Jón Björn segist þakka það togaraflotanum hvernig fiskgengdin hafi aukist á miðum bátaflotans. Nú sé ástandið þannig við suðurströndina að fara megi nánast hvert sem er og ganga að þorski vísum. „Miðin eru á uppleið og ég tel það vera togurunum að þakka. Það hefði átt að styrkja þá meira í að sækja lengra út fyrir landhelgina. Þessi skip koma jafnvel ekki heilu mánuðina eða árin inn á þau mið sem þau voru vön að vera á hér áður fyrr en ef þeim verður gert óbærileg að sækja út þá koma þau aftur á þessar slóðir. Það sjálfsagt endar með því. Þetta eru mjög öflug skip og þau gætu verið fljót að þurrka upp miðin. Ég segi því enn og aftur að það sem heldur lífinu í þessu er kvótinn. Menn eru oft að agnúast út í kvótakerfið en það hefur bara sýnt sig aö kerfið er það eina sem dugar til að takmarka sóknina, hvort sem mönnum líkar betur eða verr. Hvernig halda menn eiginlega að ástandið væri ef kvótakerfið væri ekki til staðar til að halda aftur af mönnum. Menn gera sér ekki grein fyrir því hversu nærri var komið algjöru hruni." Jón Björn Vilhjálmsson, skipstjóri og Amar Magnússon, vélstjóri, í brúnni á bát sínum, Andra KE. Jón Björn segir ástandiö á miöunum minna á gamla oggóöa daga þegarþorskur var um allan sjó. Myndir. jóh 1 6 ÆGIR

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.