Skipalyftan hf. í Vestmannaeyjum: Stórt verkefni við lengingu togbátsins Gjafars VE - einnig skipt um aðalvél og íbúðir gerðar upp Skipalyftan hf. í Vestmannaeyjum hefur samið við útgerð togbátsins Gjafars VE um verulegar endurbætur á bátnum. Strsta breytingin á bátnum er lenging um fjóra metra. Verkið var boðið út í fyrra en síðan var framkvmdum frestað. Að sögn Ólafs Friðrikssonar, fram- kvæmdastjóra Skipalyftunnar hf. er ætlunin að lengja bátinn um fjóra metra, endurnýja íbúðir, færa brú, skipta um aðalvél og fleira. Þetta er um það bil fjögurra mánaða verk og við reíknum með að hefja fljótlega smíði á ýmsum hlutum vegna breytinganna. Ætlunin er að báturinn komi síðan til okkar í febrúar eða mars og að þá verði hafist handa við að skera skipið í sundur," segir Ólafur. Um 45 manns starfa hjá Skipa- lyftunni hf. og hafa verkefni verið mikil á undangengnum mánuðum. Ólafur segir mikinn feng að því fyrir fyrirtækið að fá svo stórt verk sem breytingarnar á Gjafarí eru, enda verði þau uppistaðan í verkefnum í vetur. Gjafar VE hét áður Jóhann Gíslason og er 237 brúttólestir að stærð. Skipið er tveggja þilfara og var smíðað í Austur-Þýskalandi árið 1967 og yfirbyggt árið 1978. Eigandi Gjafars VE er útgerðarfyrir- tækið Sæhamar hf. í Vestmannaeyj- um. A. Karlsson hf. selur sérhannaðan eldhúsbúnað fyrir skip. Hafðu samband og sölumenn okkar veita þér faglega ráðgjöf. ímMSmSSmBWm A. KARLSSON hf. SÍMI 560 0900 * FAX 560 0901 » Brautarholt 28 = 105 Reykjavík HOUNO gufuofnar 6 ÆGiIR