\5kipasmíðaiðnaðuri SAMLEID MEÐ LSLENSKUM SJAVARUTVEOI Nótaskipin stkka vélarnar: Nauðsynlegt vegna kolmimnaveiðanna -segir Emil Thorarensen, útgerðarstjóri Hraðfrystihúss Eskijjarðar hf. Að minnsta kostiþrjú nóta- veiðiskip í flotanum fara í vélaskipti á komandi vori og verða vélar skipanna stkkaðar verulega. Skýring á þessu eru fyrst og fremst kolmunnaveiðarnar sem gengið hafa vel í sumar en fulUjóst er að skipin þurfa á auknu vélarafli að halda. Emil Thorarensen, útgerðarstjóri Hraðfrystihúss Eskifjarðar hf., segir ákveðið að skipt verði um vél í Hólma- borginni á komandi vori og strax að þeim breytingum loknum verða sömu breytingar gerðar á nótaskipinu Jóni Kjartanssyni. Til viðbótar þessum skip- um Hraðfrystihúss Eskifjarðar er afráðið að Börkur NK, skip Síldarvinnslunnar hf. á Neskaupstað fari í vélaskipti í vor. Athyglisvert er að öll eru þessi skip tiltölulega nýlega komin úr verulegum breytingum. Emil segir að hvað varðar Hólmaborgina og Jón Kjartansson þá hafi verið ljóst að fyrr eða síðar yrði að fara með skipin í endurnýjun á vélum og öðrum tilheyrandi búnaði. Við höfum fengið um 30 þúsund tonn af kolmunna en það er nauðsynlegt að tryggja góða veiðireynslu á kolmunn- anum áður en þessi tegund verður kvótasett. Þess vegna viljum við búa skipin betur út til þessara veiða en það er ljóst að breytingarnar eru mjög kostnaðarsamar," segir Emil. Hólmaborgin fer í vélaskiptin í mars og væntanlega verður því verki lokið snemmsumars. i oxn! SKIPAVIÐGERÐIR Disilsstillingar Plötusmíði Þjónusta okkar miðar að því að þú þurfir að koma sem sjaldnastl Spilviðgerðir Vúlíiviðrjerðir Rennismíði Vökvakerfi Giarví GrandagarÓÍ 18 101 Reykjavík 'Símar 552 8922-552 8535 ¦Fax 562 1740 Tækniþjónusta VÉLAVERKSTÆÐI 34 ÆGIR