\5kipasmíðaiðnaðurinn Gamall-nýr fiskiskipafloti? Tj egar litið er á tölur um Jr aldursþróun í fiskiskipastól íslendinga er sláandi sú breyting sem orðin er á allra síðustu árum. Meðalaldur þilfarsskipa hefur hkkað ört og ekki að undra þegar haft er í huga að nýsmíði er hverfandi. Á meðfylgjandi mynd má glögglega sjá þróunina. Árið 1993 fór meðlaldur- inn að stíga, samfara því að þilfars- skipum fækkaði. Nú er svo komið að meðalaldur þilfarsskipanna er yfir 20 ár en ekki er ólíklegt að t.d. smíði þriggja nýrra nótaveiðiskipa, sem sam- ið hefur verið um, muni draga úr meðalaldurshækkuninni. Siglingastofnun fjailaði um þetta mál í fréttabréfi stofnunarinnar fyrir skömmu og þar var bent á að á meðan meðalaldur þilfarsskipa fari hækkandi hér á landi þá haldi nágrannaþjóðir okkar áfram endurnýjun fiskiskipa- stóla sinna af fullum krafti. Með nýj- um skipum fáist framþróun, hag- kvæmari rekstur, öruggari vinnuað- stæður og betri en gömul og breytt skip geti boðið. Siglingastofnun vekur athygli á nokkrum atriðum varðandi valkostina tvo við endurnýjun skipastólsins, þ.e. endurbyggingu eldri skipa eða ný- smíði. I fyrsta lagi hafi lengd skip að jafnaði minni burðargetu en ný skip sömu lengdar og erfiðara sé að koma fyrir búnaði þar sem þau séu mjórri. í öðru lagi sé stálvinna hlutfallslega dýrari í breytingum en nýsmíði. I þriðja lagi risti breyttir loðnu- og síld- arbátar meira en ný skip með sömu burðargetu og vegna djúpristunnar þurfi að verja háum fjárhæðum til að Meðalaldur þilfarsbáta hækkar ört 1200 1000 800 1 600 400 200 0 25,0 20,0 15,0 10,0 5,0 0,0 Ifjöldi aldur 1990 1991 1992 1993 1994 1995 1996 1997 Alduríárum Ifjöldi 996 993 955 943 867 825 800 790 aldur 16,0 16,0 16,0 17,0 17,0 18,0 19,0 20,1 40 ÆGIR