Skipta þarf reglulega um perur í flóðlýsingu skipa - segir María Johnson hjá Heimilistkjum hf. T Teimilistki hf. í Reykjavík selja A. A. flóðlýsingu frá Philips, en lýsing utn borð í skipum er eitt af grundvallaratriðunum til að skapa betri vinnuaðstöðu í erfiðum veðrum. María Johnson hjá Heimilistkjum segir að fyrirtkið hafi um árabil selt vandaðan flóðlýsingarbúnað frá Philips en hún minnir á að skipta þurfi reglulega um perur vegna þess að með aldrinum dofni birtan sem perurnargefa frá sér. Góð lýsing er að sjálfsögðu lykil- atriði í öryggi starfsmanna um borð og gott er að huga að henni fyrir vetur- inn. Ástæða væri til að hafa fyrir reglu að skipta annað hvert ár um peru í ljóskösturum á skipum" segir María. Heimilistæki koma víða við í söiu á búnaði fyrir skipaflotann því auk allra almennra heimilstækja, myndbands- tækja, sjónvarps-, hljóm- og símtækja selur fyrirtækið m.a. fartölvur frá Getac sem þola raka, seltu, bleytu og högg. Þetta eru tölvur sem góð reynsla er af og vegna þess hversu harðgerðar þær eru þá henta þær vel í skip. Al- mennt er tölvunotkun að vaxa í skip- um og þá er mikilvægt að þær séu þannig úr garði gerðar að þola erfiðar aðstæður," segir María. Getac-tölvurn- ar eru eilítið dýrari en hefðbundnar tölvur en María bendir á að þar komi á móti hversu sterkar þær eru. í búnaði um borð í skipum þarf að taka tillit til plássleysis og segir María að Heimilistæki hafi selt mikið af þvottavélum frá Eumenia vegna þessa, en þær eru sérstaklega fyrirferðalitlar. Annar búnaður sem Heimilstæki selur fyrir skip eru t.d. öryggis og eftir- litskerfi frá Sanyo. Þarna er um að ræða skjái og myndavélar sem tengd eru saman í kerfi. Þannig er hægt að fylgjast með mörgum myndavélum á einum skjá og honum er hægt að fjórskipta þann- ig að í einu komi fram myndir frá fjór- um myndavélum. í skipum hentar svona kerfi mjög vel og til að mynda settum við öryggis- og eftirlitskerfi í Helguna RE. Þar er hægt að fylgjast í brúnni með því sem fram fer úti á dekki og niðri í vinnslusal skipsins og sömuleiðis býður kerfið upp á að hafa fastar myndavélar sem fylgjast rrieð einu tæki eða hverju öðru sem ástæða þykir til að vakta." Aðspurð segir María kerfi af þessu tagi mjög einfalt í notkun og uppsetninu. Boðið er upp á þá þjónustu að setja kerfi upp fyrir viðskiptavini, óski þeir þess. TÆKNIBUNAÐUR RAFMOTORAR Stærðir: 0,18-900 kW A IIII HRAÐASTYRINGAR Nýjung: ACS-140 Litlar stýringar Stærðir: 0,37 - 2,2 kW Breidd: 8cm Festist beint á DIN-skinnu Nánari upptýsingar í síma 5 200 800 og á vefnum: www.ronning.is & www.abb.com AFLROFAR Gerð: SACE Stærðir: 125 til 2500 A i JT JOHAN RÖNNING 54 ÆGIR