Hvaða fiskistofnar í norðurhöfum eru nýttir með sjálfbrum hætti?: Fyrstu niðurstöður Alþjóða hafrannsóknarráðsins væntanlegar á næsta ári - Norðurlöndin þrýsta á um alþjóðlega skilgreiningu /'umrðunni um nýtingu auðlinda hafsins kemur aftur og aftur upp hugtakið sjálfbrar veiðar. Ljóst er að á alþjóðavettvangi munu kröfur um upplýsingar um veiðistjórnun og nýtingu auðlinda fara vaxandi og þess vegna hefur veríð þrýst á Alþjóða . hafrannsóknarráðið að koma fram með skilgreiningu á þessu hugtaki sem hgt verði að nota sem viðmið- un á alþjóðlegum vettvangi. Fyrstu niðurstöður um málið eru vntanleg- ar frá ráðinu á nsta ári og mun það snúast um nýtingu fiskistofna í norð- urhöfum. Þorsteinn Pálsson, sjávarútvegsráð- herra, vék að þessu málefni á Fiski- þingi og sagði það afskaplega mikil- vægt til að svarað verði kröfum mark- aðarins, sem sífellt aukist. Við þurfum að geta lagt á borðið upplýsingar sem duga til að uppfylla kröfurnar. Ég tel mjög þýðingarmikið að við byggjum viðmiðanir varðandi kröfugerð um sjálfbæra nýtingu auð- linda á líffræðilegum forsendum og förum ekki að blanda öðrum þáttum þar inn í. Þetta mál verður að ræðast á alþjóðlegum vettvangi vegna þess að viðmiðanirnar þurfa að vera hliðstæð- ar fyrir allar þjóðir. Annars verða til úr þessu viðskiptalegar hindranir eða al- gjörlega marklaus plögg. Fyrir þá sök hefur þetta mál verið rætt innan Norðurlanda og á vettvangi ráðherra- nefndar Norðurlanda sem fjallar um 10 ÆGIR------------------- Þorsteinn Pálsson, sjávarútvegsráðiierra, segir að á alþjóða vettvangi verði Islendingar að v'mn að því aö eyða fordómum ígarð viðmiðana um sjálfbra nýtingu. sjávarútvegsmál. Þar var tekin ákvörð- un um að fara þess á leit við Alþjóða hafrannsóknarráðið að það gefi álit á því hvaða stofnar í norðurhöfum eru nýttir á grundvelli meginreglunnar um sjálfbæra nýtingu. Þetta er fyrsta skrefið í þá átt að fá alþjóðlega viður- kenningu á afmörkuðu hafsvæði með óháðu vísindalegu mati og líffræðileg- um mælikvörðum," sagði Þorsteinn og bætti við að von sé á svari frá Alþjóða hafrannsóknarráðinu vegna þessa er- indis á næsta ári. Ráðherra sagði að máli um sama efni hafi verið hreyft hjá Alþjóða mat- vælastofnuninni, FAO, en þær tilraun- ir segir hann að ekki hafi skilað ár- angri. Þar á bæ hafi komið fram mikil andstaða frá ríkjum Suður-Ameríku sem óttist að málið sé sett fram til að b'yggja upp viðskiptahindranir. Við þurfum á alþjóða vettvangi að vinna að því að eyða slíkum fordóm- um og verðum að tryggja að málin séu sett fram með þeim hætti að aðrir þurfi ekki að óttast viðskiptahindranir. Einmitt þess vegna höfum við lagst gegn því að fjölþjóðlegt fyrirtæki geti haslað sér völl og tekið sér það vald að setja viðmiðunarreglurnar sem fara á eftir. Þær reglur teljum við að setja þurfi af óháðum aðilum sem ekki eru beinir þátttakendur á markaðnum," sagði Þorsteinn Pálsson.