SAMLEID MED ISLENSKUM SJAVARUTVEGI Hráefni fyrir rkjuverksmiðjuna á Skagaströnd á að vera tryggt með nýjustu aðgerðum Skagstrendíngs hf. Skagstrendingur mætir niðursveiflunni í rækjunni 5kagstrendingur hf. hefur ráðist í aðgerðir til að mta samdrtti í rkjuveiðum hér við land. Fyrirtkið hefur keypt rkjuskipið Blng NK- 117 af Síldarvinnslunni hf. á Nes- kaupsstað og leigtþað fyrirtki í Eistlandi. Eistneski samstarfsaðilinn er einnig eigandi ífyrirtki með Skagstrendingi hf. og Nasco hf. sem tlunin er að kaupi rkjuskipið Helgu Bjórgu af Skagstrendingi en hæði skipin verða síðan gerð út á Flmingjagrunn og tnunu leggja upp afla hjá Skagstrendingi hf. Á þennan hátt tryggir fyrirtkið hráefni til vinnslu sinnar. Jóel Kristjánsson, framkvæmdastjóri Skagstrendings hf., segir að rekstur Helgu Bjargar hafi ekki gengið sem skyldi að undanförnu. Ástæðan er fyrst og fremst það dapra ástand sem er á rækjumiðunum. Hann segir að fyrirtækið hafi horft til möguleika á að selja skipið og fá annað öflugra í stað- inn. Blængur NK sé góður kostur en ekki sé grundvöllur fyrir útgerð skips- ins hér í lögsögunni á meðan niður- sveiflan í rækjuveiðunum vari. Með framangreindu fyrirkomulagi í útgerð skipanna á að vera tryggt að rækjuvinnslan á Skagaströnd fái 2500 tonn af iðnaðarrækju á ári. Ekkert bendir til annars en ástandið á Flæm- ingjagrunni sé gott, veiðar hafa gengið vel á svæðinu síðasta árið og greinilegt að öflugustu skipin ná bestum árangri. Til að gera Blæng betur úr garði til veiðanna hefur verið ákveðið að í lok janúarmánaðar verði settur nýr spil- búnaður um borð. Með honum getur Blængur veitt með tveimur trollum samtímis. Þá verður einnig sett öflugri aðalvél í skipið, 3300 hestöfl. Breyt- ingum á að ljúka í febrúar og heldur skipið þá til veiða. ÍHEVTINGOBr1 Sameining HÞ og Skála úr sögunni Ekkert verður af samruna Hraðfrystihúss Þórshafnar og Skála ehf., sem meðal annars gerir út loðnuskipið Júpíter. Minnihlutaeig- endur í Skálum lögðust gegn samrunanum og hótuðu að krefjast innlausnar ef hann gengi eftir. Þar með var hætt við samrunaferlið. Um þessar mundir eru einnig að verða stjórnarformannsskipti hjá Hraðfrystihúsi Þórshafnar hf. ísak Ólafsson, sveitarstjóri á Þórshöfn hefur tekið við því embætti af Reinhard Reynissyni, fyrrverandi sveitarstjóra. Nasco kaupir hlut í Bakka Inn- og útflutningsfyrirtækið Nasco ehf. í Reykjavík hefur keypt 60% hlut í Bakka hf. í Bolungarvík. Seljandinn er Þorbjörn hf. í Grindavík sem áfram á hlut í bakka á móti Nasco. Ætlunin er að í framhaldi af kaupunum verði hrá- efnisöflun styrkt fyrir rækjuverk- smiðju Bakka hf., auk þess sem fjár- hagsstaða fyrirtækisins verði betri. Jafnframt aðgerðunum mun sú breyting verða á að Þorbjörn hf. tekur við öllum útgerðarþætti Bakka hf., sem og veiðiheimildum. NGÍIR 23