SAMLEIÐ MEÐ ISLENSKUM SJAVARUTVEGI Nefndastörfá Fiskiþingi: ___ r Fiskifélagi Islands ætlað stórt hlutverk f*rír vinnúhópar störfuðu á Fiski- ÆTþingi og skiluðu tilþingsins tillög- um sem það afgreiddi áfram til stjórnar Fiskifélags íslands til áfram- haldandi úrvinnslu. Fjallað var um umhverfislýsingar, -stefnur og -vott- un, umhverfismerkingar sjávaraf- urða og hlutverk Fiskifélags íslands í umhverfismálum. Umræður um álit þessara vinnu- hópa sýndu vel hversu mikil samstaða er um umhverfismálin innan sjávarút- vegsins, þrátt fyrir að áherslur séu mis- jafnar. Meðal þess sem hópurinn sem fjallaði um umhverfismerkingar sjáv- arafurða benti á var að íslendingar verði að taka virkan þátt í starfi á al- þjóðavettvangi um mótun krafna hvað varðar umhverfismerkingar. ís- lendingar þurfi að standa saman um stefnuna og koma fram sem eín heild við kynningu hennar. Ekki sé tíma- bært að skapa íslendingum ákveðið umhverfismerki þar sem ekki liggi fyr- ir til hvers verði ætlast. I umfjöllun um Fiskifélag íslands og hlutverk þess í umhverfismálum lagði hópurinn til að félagið verði sam- starfsaðili og leiðandi afl í umhverfis- málum varðandi íslenskan sjávarút- veg. Þessu hlutverki fylgi félagið með- al annars eftir með því að vera á vakt- inni um hvað er að gerast í alþjóðlegu samstarfi í umhverfismálum og komi jafnframt á framfærí stefnu sjávarút- vegsins við stjómvöld í þessum mikil- væga málaflokki. Félagið taki að sér að kynna samþykktir um málefni sjávar- útvegs í umhverfismálum út á við og samræma sjónarmið innan íslensks sjávarútvegs í umhverfismálum. FISKVERKENDUR - UTCERÐAMENN! Memtermáttur Starfsfræðslunefnd fiskvinnslunnar býður nú um 30 mismunandi námskeið og fyrirlestra fyrir starfsfólk sjávarútvegsins. Hluti námsefnis: Vinnuöryggi Hreinlætismál Hráefnismeðferð Mannleg samskipti Verkkennsla Handflökun Innra eftirlit Heilsuvernd Gæðastjórnun Rekstraráætlanir Markaðsmál Kjaramál Hafðu sambcmd efþú ert ífrðsluku^áðmgum Starfsfræðslunefnd fiskvinnslunnar Skúlagötu 4, 101 Reykjavík, s: 560 9670 Starfsfræðslunefnd fiskvinnslunnar heyrir undir Sjávarútvegs- ráðuneytið og er hlutverk hennar aö skipuleggja fræðslustartsemi fyrir starfsfólk í fiskiðnaði. Nefndin er skipuð fulltrúum frá ráðu- neytinu, samtökum atvinnurekenda og Verkamannasambandi íslands. ÆGiIK 27