Umhverfisstefna Sölumiöstöðvar hraðfrystihúsanna hf: Erum að búa okkur undir umhverfísumræðuna í markaðslöndum okkar" - segir dr. Alda Möller, þróunarstjóri SH á^ölumiðstöð hraðfrystihúsanna hf. kynnti fyrr á þessu ári viðamikla um- LJ hverfisstefnu og hefur hún einnig veriðþýdd á ensku og dreift til sóluskrif- stofa og viðskiptavina fyrirtcekisins vítt og breitt um heim. Dr. Alda Móller, þróunarstjóri SH, hefur unnið síðustu árin aðþessu verkefni og hún segir fyrir- tcekið hafa fengið mjöggóð viðbrögð frá kaupendum. Athyglisvert er að ekki er vitað til að ónnur fisksölufyrirtki í heiminum hafi ráðist íframtak sem þetta. Hvaða tilgangi þjónar það hjá fisk- sölufyrirtæki að gefa út sérstaka um- hverfisstefnu? Alda segir í samtali við Ægi að þetta framtak hafi ekki komið til vegna krafna kaupenda heldur eigi það sér rætur í umræðunni innan fyrirtækisins. í þróunarstarfi þarf alltaf að huga að því hvernig fram- leiðslumagn geti aukist. Eru nýjar vörur sóttar í vaxandi veiðar eða er verið að þróa vör- ur upp úr veiðum sem stefnir í að fari minnkandi? Umhverfis- stefna er okkar vinnutæki til að fylgjast með. Hvað varðar heil- næmi afurða þá höfum við safnað upplýsingum á undan- förnum árum til að vera því viðbúin að svara spurningum sem koma upp. Þegar kom fram á þetta ár ákváðum við að setja kraft í næsta skref í upp- lýsingasöfnunni og ganga frá um- hverfisstefnu fyrirtækisins í heild. Að mínu mati erum við að búa okkur undir mikla umræðu í markaðslönd- um okkar. Ég vil ekki kalla þetta þrýst- 32 ÆGJR ---------------------- ing frá kaupendum en þeir vilja fá upplýsingar um heilnæmi vörunnar og í hvaða farvegi umhverfismál eru hér heima, enda verða kaupendur okkar varir við mikinn þrýsting frá umhverfisvemdarsinnum. I mínum huga er það allra hagur að vera upp- Best að hafa frumkvðið í umhverfismálum." lýstur, enda engin afsökun fyrir fá- fræði í dag. Við teljum okkur hafa gott af því að hafa farið í gegnum vinnuna við mótun umhverfisstefnunnar og því er ekki að neita að kaupendum okkar þykir gott að geta gengið beint að umhverfisstefnu okkar," segir Alda. Sókn en ekki vörn Að mati Öldu ber mun frekar að líta á mótun umhverfisstefnu sem lið í sókn en vörn. Hún segist aldrei hafa haft þá tilfinningu að fslendingar þurfi að vera í vörn í umhverfismálum. Of lítið hafi verið gert af því að halda á lofti niðurstöðum úr mengunarmælingum í sjónum hér við iand en uppiýsingar af því tagi sé hægt að nota í markaðs- starfi. Satt að segja kom mér á óvart þegar ég leitaði eftir þessum upplýsingum hversu tvístraðar þær voru og mikil vinna að ná þeim saman. Ég held að það sé ekki nógu mikið hugsað fyrir því að koma upplýsingum á fram- færi og gera þær skiljanlegar fólki sem ekki hefur vísindalega menntun. Hvað varðar sjálfbærni veiða þá finnst mér þar komið að forsendu fyrir því að hægt sé að stunda viðskipti. Það er augljóst að viðskiptin eru ekki sjálf- bær ef veiðar eru ekki sjálfbærar. Of- veiði kemur fram í því að útgerðar- kostnaður hækkar, hráefnisverð hækk- ar, varan verður óhagkvæm í vinnslu og síðan kemur að því að vöru fer að vanta. Það ber þess vegna allt að sama