Ægir

Árgangur

Ægir - 01.12.1998, Blaðsíða 37

Ægir - 01.12.1998, Blaðsíða 37
SAMLEIÐ MEÐ ÍSLENSKUM SJÁVARÚTVEGI ~f*að hefur alla tíð verið til staðar JT mikil umhverfisvitund í sjávarút- veginum og hún stafar einfaldlega af því að menn lifa afþví að nýta þetta umhverfi. Ástand þess þarfþar af leiðandi að vera gott. A hinn bógitin er ekki jafn víst að menn hafi alltaf verið upplýstir um umhverfisáhrif alls sem þeir eru að gera en þegar sií hlið kemur inn í umrœðuna þá bregð- ast metm vel við. Mér finnst umrœð- an settt nú er uppi vera tnjög skemmtileg og lofa góðu," segir Krist- ján Þórarinsson, stofnvistfrœðingur LÍÚ, sem bceði hefur tekið þátt t mót- un umhverfisstefnu samtaka útvegsmanna og samstarfi Norður- landanna í umhverfismálum sjávar- útvegs. EMci við liæl'i aö einriaðÍÍi ákveði hvernig annar á að vinna Máliö snýst fyrst og l'remst nm nýtiíigu ; fískistpfna og sjálibairár veiðar => rtirðar mést útvegsmenn og sjómenn ':'í; ■ Samstarf allra greina sjávarútvcgs cr mjög æskilegt Kristján Þórarinsson, stofnvistfrœðingur LÍÚ, rœðir umhverfismál við fulltrúa á Fiski- þingi nú í nóvember. Hann segir þann skilning ríkjandi hér á landi að umhverfismál sjávarútvegs verði að vera í góðum farvegi enda lifi þjóðin afnýtingu auðlindanna í haf- inu umhverfis landið. „Það er umhverfisvitund í íslenskum sj ávarútvegi“ Kristján segir að benda megi á marga kosti sem betri umhverfisvit- und í sjávarútvegi hafi í för með sér. í markaðslegu tilliti skapi þetta tæki- færi, vörn gegn umhverfisáróðri verði auðveldari og síðan sjái fyrirtæki sem leggi út í umhverfisaðgerðir fjárhags- legan ávinning af því starfi - ávinning sem komi til móts við þann kostnað sem lagt er út í, t.d. við vottunarferli samkvæmt ISO stöðlum. „Við sjáum að þegar byrjað er að fara skipulega yfir umhverfismálin í fiskiskipunum þá byrja menn að velta fyrir sér hvort hægt sé að gera ýmsa hluti öðruvísi og á ódýrari hátt. Þetta er sama og gildir um aðra þætti í rekstri: ef lagst er yfir málin má oftast finna nýjar og betri leiðir," segir Krist- ján. Kristján telur ekki að öll fyrirtæki í sjávarútvegi þurfi að leggja út í vinnu við eigin umhverfisstefnu. Þróuin sé mjög ör þessa mánuðina og enn sem komið er hafi ekki verið mótaðar al- þjóðlegar skilgreiningar til að styðjast við. Hér er komið að umræðunni um umhverfismerki og þeirri spurningu hvort framundan sé eitt umhverfis- merki fyrir sjávarafurðir, svæðisbund- in merki eða merki sem bundin eru ákveðnum tegundum. „Þegar um þetta mál er rætt þá vil ég að gerður sé skýr greinarmunur á þeim kröfum sem gerðar eru til að menn geti merkt fisk og hins vegar á sjálfu merkinu sem kosið er að nota. Ég hef unnið að þessu máli í norrænu samstarfi og ég vil að íslendingar taki frumkvæði á norrænum vettvangi og síðan Norðurlöndin sameiginlega. Við eigum að segja hvað okkur finnist vera best og skynsamlegast og þannig höf- um við áhrif á alþjóðavettvangi. Um- hverfismerki á afurðir er sóknarfæri en við getum ekki farið út í að búa til reglur sem stangast á við alþjóðleg viðskipti. Þess vegna þurfa að koma til almennar alþjóðlegar reglur og skil- greiningar og síðan er hægt að útfæra merki á hverju svæði. Ég get séð fyrir mér norrænt merki eða íslenskt merki, sem ég tel reyndar betra fyrir okkur. Það geta líka orðið til merki fyrir ein- stakar tegundir en grundvallaratriðið er að samræmdar reglur búi að baki. Það er enginn vandi að búa til um- hverfismerki en vandinn er að selja það og skapa því trúverðugleika. Ég held að hluti af grunninum fyrir um- hverfismerki verði Iagður á næsta ári, þ.e. samræmdar siðareglur fyrir Norð- urlöndin, en hins vegar er mun lengra í alþjóðlegar skilgreiningar," segir Kristján Þórarinsson. ÁGIR 37 fóhann Ólafur Halldórsson
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.