SAMLEIÐ MEÐ ISLENSKUM SJAVARUTVEOI ísfélagið hf. með gjörbreytta fiskimj ölsverksmiðj u /sfélagið hf. í Vestmannaeyjum hefur tekið í notkun endurbtta fiskimjólsverksmiðju. Segja má að verksmiðjan hafi verið endurbyggð frá grunni. Eftir breytingarnar getur verksmiðj- an framleitt hágæðamjöl og mengun er í algjöru lágmarki. Mengunarmálið var einmitt þáttur sem taka varð á og að mati forsvarsmanna ísfélagsins skil- ar þessi framkvæmd í heild sinn mun öflugri verksmiðju og traustari í rekstri. Þegar framleitt er í gæðamjöl af- kastar verksmiðjan um 600 tonnum á sólarhring en annars um 900 tonnum. Kostnaður við breytingarnar var um 600 milljónir króna en þá er meðtalið nýtt hús og þorrinn af hinum nýja tækjabúnaði sem í verksmiðjunni er. REVTINGUR Varðskipið kostar um 3 milljarða Nýtt varðskip íslendinga, sem þessa dagana er verið að ljúka hönnun á, mun kosta á bilinu 2,5 til 3 milijarða króna. Skipið verður tekið í notkun eftir um þrjú ár og verður um 3000 tonn að stærð. Ekki hefur enn verið gengið frá því hvernig að smíðinni verður staðið en kappkostað er að hún geti farið fram hjá innlendum stöðvum. VandaOar vflrur * Vinnuflotgallar: Samfestingur eða jakki og buxur * Gore-Tex® björgunarbúningur * Fóðraðir vatnsheldir kuldagallar * Sjógallar, gúmmíhanskar, beitingarvettlingar, stígvél, vöðlur * RB-krókar, girni, blýsökkur, járnsökkur, gúmmídemparar, sigurnaglar, nælur, goggar * Sjóstangir, veiðihjól, gervibeitur RB "Veiðarfaeri Vatnagörðum 14 Sími 581 4470 Fax 581 2935 Netfang: rafbjorg@vortex.is ÆGIR 55