264 sn/mín við 1600 sn/mín á aðalvél. Framan á aðalvél er deilgír fyrir þrjár háþrýstar vökvadælur. Deiligírinn er frá Technodrive af gerðinni AM 345. Dælurnar knýja vökvakerfi, 100 hest- afla 0,7m bógskrúfu frá Kungshamn og varg" rafal. Hjálparvélar Ljósavélin er frá Valmet, 59 kW af gerðinni 611 DMG. Vélin er sex strokka fjórgengisvél með Stamford rafal af gerðinni MHC234E, 65 kVA við 1500 sn/mín. Auk ljósavélar er vökvaknúin vargur" með Stamford rafal af sömu gerð og er við ljósavél. Rafkerfi skipsins er 3 x 220/380 V, 50 Hz.. Tveir 12,5 kVA, 3 x 220/380 V spennar frá Axel Akermann eru í skip- inu og 63 A landtenging. Samfösun véla er ekki möguleg en hægt er að skipta netinu á milli véla eftir grein- um. Vélar eru ræstar með 24 V raf- störturum og er sérstakt rafkerfi með startgeymum fyrir það. Neyðarrafkerfi er í skipinu, 24 V jafnstraumskerfi með rafgeymum. Stýrisvélin er frá Scan-Steering, raf- og vökvaknúin. Eldsneytisolíu- og glussaskiljur eru frá CJC. Sambyggt eldsneytisskilju er olíueyðslumælir frá Otto Bertelsens með aflestri í brú. Upphitun er með olíukatli sem einnig heldur aðalvél og ljósavél heitum. Vökvakerfi Vökvakerfi er háþrýst og knúið af að- alvél og rafmagnsmótorum. Kerfið knýr þrjár togvindur, bógskrúfu, akk- erisspil, kapalvindu, vökvaknúinn rafal (varg) og ýmsan annan búnað á vinnsluþilfari. Kælikerfi og ísvél Ein kælivél frá Presscold af gerðinni PR 750/- er fyrir kælingu Iestar. Kæli- kerfið notar kælimiðilinn Freon 22, u.þ.b 12 kg. ísvélin er frá Ziegra Eis Maschinen með Blizer 4H2 þjöppu. Afköst eru að sögn 2,5 tonn á sólarhring. Kælimiðill er Freon 502. Helstu tæki í brú Gíro áttaviti Robertson RGC 50 Sjálfstýring Furuno FAP 50 með AD10S gírobreyti Log Furuno Dopler speed Log DS-70 Radar FurunoARPAFR2112 Leiðrétting Furuno GR 80 Radar Furuno Model 1830 Höfuðlmumlir Furuno CM24 GPS Móttakari FurunoGP 80 GPS Shipmate 4000cc Óskum eigendum og áhöfn Arons ÞH til hamingju með skipið Trésmiðjan Brim annaðist innréttingar og frágang í brú. - - » _" i '-k* láÉi FEi I.'. ia Reykjavíkurvegi 64 220 Hafnarfirði Sími 565-4420 Fax: 565-4401 60 ÆGIR