Ægir

Árgangur

Ægir - 01.10.2000, Blaðsíða 26

Ægir - 01.10.2000, Blaðsíða 26
FRÉTTAVIÐTAL „Ekki ástæða til að breyta reglum um fjár- festingar erlendra aðila í íslenskum sjávarútvegi" - Árni M. Mathiesen, sjávarútvegsráðherra, ræðir skýrslu Auðlindanefndar, erlenda fjárfestingu, breytingu á kvótaþaki og fleira „Helstu og stærstu tíðindin í tillögum Auðlindanefndar finnast mér vera þau að nefndarmenn eru sammála um að aflamarkskerfið eigi áfram að vera hornsteinn íslenskrar fiskveiðistjórnunar. í skýrslunni eru vegvísar um auðlindamál íslenskrar þjóðar í heild og lagt er til að í stjórnarskrá verði bætt við ákvæði þannig að eignarhald á auðlindum sem ekki eru í einkaeign, verði í þjóðareign." „Það á skoða í heildarsamhengi og Alþingi ætti að gera það að mestu leyti, óháð því hverju fram vindur í endurskoðun laganna um stjórn fiskveiða," segir Árni M. Mathiesen, sjávarútvegsráðherra í samtali við Ægi um þær tillögur sem Auðlindanefnd setti fram á dögunum. Þær hafa fengið mikla athygli og hafa menn litið svo á að þær séu mikilvægt skref til þess að skapa sættir í þeim miklu deilum sem verið hafa síðustu árin um markmið og leiðir við stjórn fisk- veiða. íslenskur sjávarútvegur í harðri samkeppni „Nefndin kemst að þeirri niðurstöðu að greiða eigi fyrir afnotin en hún setur jafnframt skilyrði fyrir gjaldtökunni. Slík greiðsla stuðli að því að sátt geti tekist um stjórn fiskveiða og verði sú gjaldtaka ákveðin með hliðsjón af afkomuskilyrðum og upp- byggingu sjávarútvegsins og þeirri óvissu sem hann á við að búa, meðal annars vegna ófyrirsjáanlegra breyt- inga á aflabrögðum og vegna alþjóðlegrar samkeppni, þar á meðal þau skilyrði sem sjávarútvegur annarra þjóða býr við,“ segir Árni M. Mathiesen og telur þetta mikilvægt, ásamt þeirri forsendu nefndarinnar að gjaldtakan verði hófleg. „Tekið er fram að veita eigi núverandi handhöfum aflahlutdeilda aðlögunar- tíma, bæði vegna íþyngjandi breytinga og með tilvís- un til áunninna atvinnuréttinda. Aðlögunartíminn fari eftir hvaða gjaldtökuleið verði valin, áhrifum hennar á tekjuskiptingu innan greinarinnar og hve gjaldtakan verður mikil.“ Gjaldtökuleiðirnar sem nefndin leggur til, og ger- ir ekki upp á milli, eru tvær; fyrningarleið eða veiði- gjaldsleið. „Báðar hafa þær áhrif á verðmæti sjávarút- vegsfyrirtækja, veðhæfni þeirra og stöðu greinarinnar í heild. Það er verið að taka fjármuni út úr hagkerfi sjávarútvegsins, með öðrum orðum minnka það. Síð- ast en ekki síst er svo kaflinn um fiskveiðistjórnuna- kerfið í heild. Þar koma fram athyglisverðar tillögur. Nefndin mælir eindregið gegn því að framsal á kvóta verði takmarkað, enda sé flutningur á aflaheimildum til fyrirtækja sem best geta nýtt þær ein helsta leiðin til aukinnar hagkvæmni í greininni. Hvað varðar sér- stakar eða breyttar skattareglur til að ríkið nái aukn- um hlut af ágóða af kvótaviðskiptum leggst nefndin gegn því að slíkar breytingar verði gerðar, enda muni auðlindagjaldið koma í staðinn. Þegar rætt er um dreifða eignaraðild er bent á að tækniþróun og gjör- breytt skilyrði á fjármagnsmarkaði séu meginorsakir breytinga á skipulagi sjávarútvegsfyrirtækja frekar en kvótakerfið. Þegar kvótaþakið hafi verið leitt í lög hafi það byggst á þeirri skoðun að kvótakerfið væri aðalorsök samþjöppunarinnar og henni fylgdi hætta á byggðaröskun og yfirdrottnun fárra. Bent er á að ís- lenskur sjávarútvegur sé í harðri samkeppni og stærstu fyrirtækin í greininni fjarri því að vera stór á alþjóðlegan mælikvarða. Þarna eru leidd rök að því að afnema kvótaþakið." Samsæriskenningar fleiri en samsærin En er með sanni að segja að þessar tillögur séu grund- völlur sátta f greininni?

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.