Ægir

Árgangur

Ægir - 01.10.2000, Blaðsíða 29

Ægir - 01.10.2000, Blaðsíða 29
FJARSKIPTI & SJÁVARÚTVEGURHHB Jóhann Bjarnason, framkvæmdastjóri Radíómiðunar. „Hægt að klæðskerasauma fjarskiptalausnir að þörfum hvers og eins. „Höfum á liðnum árum aukið sérstöðu okkar á fjarskiptasviðinu" - segir Jóhann Bjarnason, framkvæmdastjóri Radíómiðunar ehf. „Okkar sérhæfing hjá Radíómiðun snýst um fjarskipta- lausnir fyrir sjávarútveginn og á því sviði teljum við okkur hafa að bjóða fjölþætta möguleika." „Staðreyndin er sú að þegar kemur að fjarskiptum skipa þá er fyrsta spurningin sú hvaða þarfir viðskiptavinarins þarf að uppfylla, hverjar hans óskir eru og svo framvegis. Þegar forsendurnar eru ljósar þá er hægt að klæðskerasauma lausnir fyrir hvern og einn en ég þori að fullyrða að í mörgum tilfellum er hægt að verða við óskum viðskiptavinanna með ódýrari hætti en marga þeirra grunar," segir Jó- hann Bjarnason, framkvæmdastjóri hjá Radíómiðun. „Það sem hæst ber að mínu mati um þessar mundir er bylting í verðlagningu gervihnattasambands,“ segir Jóhann og bendir á að fyrirtæki hans hafi nýverið farið að bjóða lausnir í svokölluðu EMSAT kerfi, en það er gervihnattasam- band um hnött yfir miðbaug sem nær til Evrópu og yfir allt N-Atlantshafið. Kerf- ið býður upp á talmöguleika og gagna- flutning með 4,8 kbps sambandi, sem þýðir t.d. að öll einföld tölvupóstsam- skipti eru auðveld. „Mínútugjaldið í EMSAT-kerfinu er komið niður fyrir 100 krónur og það er veruleg lækkun frá því sem þekkst hefur í gervihnattasambandi. Tölvupóstþjón- usta hefur verið í boði um margra ára 29

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.