16 lögmál bindur jörð við sól. Dróttir heims við drottins stól dómspekt fengu' og lög. Líkn þú hin Ijúfa, Ijósheims vænsta dís; björg jarðarbúa besta, mild og vís!. Þegar þrotnar gæfa, þín er hjálpin föl. Hvað er sælla' en svæfa særðra' og veikra kvöl, vera mannkyns heilsu-hlíf, hrinda nauðum, bæta kíf, græða mein og lengja líf, Ijetta heimsins böl? II. Kór. Ó, vakið, vakið, vættir lands! sem vöktuð hjá fámennri, afskektri þjóð á reynslunnar tíð, svo þar aldrei dó út á arni hin heilaga glóð! Verndið, hollvættir landsins, í lengd og i bráð vorrar lífssögu dj'rastan arf, því með lotning við feðranna fornment skal háð vort framtíðar-menningar-starf. Vakið, vættir lands! Vakið, vættir lands! Signið, Ijósvættir, heilögu hollvættir lands, vors háskóla menningar starf! Þú Ijós vors heims! þú heims vors Ijós! þú heilaga, máttuga alvisku sól! Send ylgeisla þína með vermandi vernd yfir vaknandi menningar skjól! Send viskunnar gætni með vegsögu-þor og vaxandi þekkingar ljós! Send lærdómsins þroska með lífstrúar-vor og listanna síungu rós! s