30 frðinni. Að þar til fenginni undanþágu byrjaði kenslan ekki fyr en 15. nóv., en til þess að bæta upp það, sem úr hafði fallið, las kennarinn alla virka daga frá 15. nóv. og til misserisloka. Dócent Jón Jónsson: Fór í fyrirlestrum yfir frumaldalíf Norðurlandabúa (stein-, bronze- og fyrri hluta járnaldar), víkingaferðir (einkum vest- ur um haf) og upphaf siðmenningar á Norðurlöndum. Ein slund á viku fyrst framan af, og síðan tvær stundir. Agrégé A. Courmonl hjelt: 1. Fyrirlestra um franska bókmentasögu (leikritaskáld 17. aldar). Tvær stundir á viku. 2. Æfingar í frönsku fyrir byrjendur, og voru lesnir: kaflar úr »Fransk Læsebog for Mellemklasserne i de höjere Skoler« eftir J. Pio; kaflar úr leikritum Moliére's; kaflar úr »Gil Blas« (A. R. Le Sage); »La Gageuse Imprévue« (M. J. Sedaine). Tvær stundir á viku. 3. Æfingar í frönsku fyrir þá, sem lengra vóru komnir, og var lesið: »Le Crime de Sylvestre Bonnard« (A. France); »L'Abbé Daniel« (A. Theuriet): kaflar úr ritum Moliére's; kaflar úr »Caractéres« eftir La Bruyére; »Les Caprices de Mariane« og »La Nuit de Décembre« (A. de Musset). Tvær stundir á viku. II. Háskólamisserið frá 15. febr. til 30. júní 1912. Prófessor, dr. phil. Björn M. Ólsen: 1. Hjelt áfram fyrirlestrum sinum um Bókmentasögu ís- lendinga, þar sem hann hætti fyrra misserið, og lauk við fyrsta kafla bókmentasögunnar (aftur að árinu 1100). Sami stundafjöldi og áður. 2. Fór yfir og skýrði með munnlegum æfingum Eddu- kvæðin: Hávamál og Helga kviðu Hundingsbana hina fyrri. Sami stundafjöldi og áður. 3. Fór yfir 5 hina fyrstu kapítula af Gunnlaugs sögu orms-