34 IV. í rjettarfari: Lýsing á meginreglum um sönnunarbyrði aðilja i einkamálum. V. í ríkisrjetti: Hvað liggur í því að alþingiskjósandi á að hafa óflekkað mannorð samkv. 6. gr. stjórnskpl. 3. okt. 1903. Læknadeildin. Prófdómandi við öll próf í þessari deild var landlæknir Guðimindur Bjórnsson, skipaður eftir tillögum deildarinnar af Stjórnarráðinu til 6 ára. 1. Upphafspróf: Undir það gekk einn stúdent í lok fyrra misseris og 7 stúdentar í lok siðara misseris og stóðust allir prófið. 2. Miðpróf. I lok síðara misseris gengu 5 stúdentar undir það próf og stóðust allir. 3. Lokapróf. í lok í'yrra misseris var 1 stúdent innritaður til þess prófs og stóðst það. í lok siðara misseris vóru 3 stúdentar innritaðir og stóðust allir prófið. Á árinu hafa því 4 stúdentar lokið embæltisprófi í læknisfræði, hlutu 3 þeirra fyrstu einkunn, en einn aðra einkunn hina betri.