58 4. gr. Ritari skal gjöra háskólaráðinu skilareikning innan 15. febr. ár hvert fyrir fje þvi, er háskólanum hefur greiðst úr landssjóði umliðið ár. Reikningurinn skal fylgja fjárlögunum lið fyrir lið, enda fylgi skilabrjef viðtakanda greiðslu hverri. 5. gr. Ritari hefur á hendi reikningshald sjóða þeirra, er háskólinn á eða stjórnar, og gjörir háskólaráðinu reikningsskil fyrir ráðsmensku sinni á þeim eigi siðar cnn i lok marsmánaðar. Hann heldur sjerstaka, löggilta reikningsbók fyrir hvern sjóð. 6. gr. Ritari setji háskólaráðinu 2000 tvö þúsund króná veð fyrir gjaldheimtu sinni, og sýni rektor gjaldabækur sinar og bankaviðskifta- bók á mánaðarfresti og mun rektor votta það í bókinni. 7. gr. Ritari annast kaup á bókum, kensluáhöldum og öðru í þarfir há- skólans, eftir þvi sem háskólaráð eða deildarforsetar mæla fyrir um. 8. gr. Ritari semur spjaldskrá yfir þær bækur deildanna, er geymdar eru í háskólanum, og skrásetur kensluáhöld, enda sje hver bók og hvert áhald skrásett jafnskjótt og fengið er. 9. gr. Geti ritari ekki gegnt starfi sínu vegna sjúkdóms eða annara nauðsynja, verður hann að setja mann á sinn kostnað í sinn stað, enda samþykki háskólaráð manninn. 10. gr. Ræki ritari starfa sinn ekki viðunanlega, getur háskólaráðið svift hann starfanum. Þannig samþykt á háskólaráðsfundi 6. september 1912. Björn M. Ólsen, rektor.