Árbók Háskóla Íslands - 02.01.1931, Blaðsíða 7
RIT NÝJA-TESTAMENTISINS VERÐA TIL
Nýja-testamentið.
Engin bók önnur hefir liaft neitt nándar nærri önnur eins
áhrif á menning og sögu allra vestrænna þjóða, eins og Nýja-
testamentið. Ýmsar hækur aðrar hafa að visu komið af stað
miklum og merkilegum hræringum, er staðið hafa um tíma
og markað tímamót í sögu þjóða. En Nýja-testamentið hefir
ekki verið hundið við eina þjóð eða fáar og ekki við eina
öld eða fáar. Það hefir verið þýtt á hundruð tungumála. Það
liefir komið út í fleiri útgáfum en nokkur hók önnur. Hand-
rit þau, er gerð voru af Nýja-testamentinu áður en prentlist
hófst, skifta þúsundum, en mörg merkustu rit önnur frá forn-
öldinni eru ekki til nema í örfáum handritum. Um margar
aldir mótaði það gersamlega öll vísindi og andlegt líf þjóð-
anna. Og enn í dag þegar svo margt glepur fyrir og kepp-
ir um hugi manna, enn í dag er það sú bók, sem mest gengur
út. Þegar hermennirnir voru að fara til vígstöðvanna í ófriðn-
um mikla, og áttu kost á að hafa með sér eina bók eða örfá-
ar, tóku miklu fleiri Nýja-testamentið en nokkra bók aðra.
Álirifasvæði þess mælist ekki í löndum, lieldur heimsálfum
og aldur þess ekki í árum lieldur öldum. Það er nú komið
hátt á aðra þúsund ára öldina, og hefir staðið af sér fleiri og
róttækari hyltingar í lmgsunarhætti og menning, stjórnar-
fari og heimskoðun, en nokkur bók önnur.
Uppruni Nýja-testamentisins.
Uppruni Nýja-testamentisins er ákaflega einkennilegur, og
ef til %áll einstæður í sinni röð. Það má sem sé með sanni segja,
að þessi bók, Nýja-testamentið, liafi aldrei verið rituð. Þegar
þau rit urðu til, er síðar var safnað saman í Nýja-testamentið,
vissi enginn um, að þessi hók mvndi verða til. Margir höfund-
ar unnu að þessu, án þess að starfa saman svo kunnugt
sé, eða vita hver af öðrum. Nýja-testamentið er ekki ein
hók, heldur safn af bókum, og flestar þeirra eru aftur söfn