24 Tímarit lögfræðinga og hagfræðinga. orðið að miklu gagni. það er á þessu sviði eins og ann- arsstaðar meira umvert að hafa góða framkvæmd lag- anna heldur en góð lög. Aðalvandinn við framkvæmd hlutafélagalaganna hvílir á skrásetningarvaldsmönnunum, lögreglustjórunum. það, hvort lögin verða að gagni eða <-:kki, er mest undir þeim komið. Annar flokkur manna, sem miklu getur á orkað um þetta, eru málaflutnings- mennirnir. peir eru oftast kvaddir til ráða þegar hluta- félög eru stofnuð, og þeir ráða í raun réttri oft mjög miklu um það, hvernig félaginu er hagað. Á þessum tveimur flokkum manna hvílir að miklu leyti ábyrgðin á því, hvernig hlutafélagalögin reynast í framkvæmdinni. Síðan þetta var ritað í apríl s. 1. hafa nokkrar til- kynningar til hlutafélagaskrár verið birtar í Lögbirtinga- blaðinu. Skv. 59. gr. hlfl. skyldu hlutafélög, stofnuð áð- ur en lögin öðlast gildi, og erlend félög, er starfa hér, tilkynt til skrásetningar fyrir.l. júlí 1922. þessu ákvæði mun alls ekki hafa verið fylgt. Að minsta kosti hafa að- eins örfáar tilkynningar um eldri félög verið birtar, og þær eru um félög, sem stofnuð eru rétt áður en lögin öðluðust gildi, og ekki höfðu verið tilkynt til firmaskrár. Væntanlega er hér aðeins um drátt að ræða, en ekki hitt, að vanrækja eigi þessar tilkynningar: Tilkynningar þær, er birtar hafa verið, gefa máske vísbendingu um það, hvernig framkvæmdin á skrásetningunni muni verða. Og því miður lítur út fyrir að hún ætli að verða svipuð i'irmaskrásetningunni. Eg hefi hér fyrir mér tilkynningar ar 6 hlutafélaga, er birtar hafa verið í sumar. Tvær þeirra sýnast fullnægja kröfum 12. gr. hlíl., hinar ekki. Gallarnir eru að vísu sumir ekki stórvægilegir, t. d. það, að staða og heimili stofnenda og stjórnenda er ekki til- kynt. Eitt félagið hefir ekki orðið hlutafélag í heiti sínu. I öðru er tilkynt, að formaður riti firmað ásamt 3 með- stjórnendum, en greinir ekki frá þvi, hver stjórnendanna sé formaður. Alt þetta hefði mátt varast með dálítilli aðgæslu. Eftirtektavert er það, að í 2 félögunum er fé-