Formáli. Hér kemur fyrir almenningssjónir búnaðarrit það, er eg bauð landsmönnum í fyrra sumar. Fyrirtæki þetta hefir fengið betri byr, eu eg bjóst við í fyrstu. Eg hefi fengið allmarga áskrif- endur í einstöku sveitum, en þð hefði eg ekki getað komið ritinu út, hefði búnaðarfélag Suðuramtsins eigi hlaupið undir bagga og lofað að verja 400 kr. til að kaupa ritið, og lands- höfðinginn enu fremur veitt til útgáf'u þess 200 kr. styrk af því fé, sem ætlað er til eflingar búnaði. Eg vil geta þess, að við ritgjörðina um fððrun búpenings" hafði eg mér til hliðsjónar ýmsar bækur, einkum Haandbog í den physiologiske Anatomi af de almindeligste danske Huus- pattedyr ved Prof. Dr. H. C. B. Bendz", Huusdyrenes al- mindelige Sundhedspleie" og Kvægets Avl pg Pleie af Prof. V. Prosch". Huspattedyrenes rationelle Fodring af Dr. E. Wolff", Malkeköernes Behandling Sommer og Vinter af N. P. J. Buus", Grundlinier till akerbrukskemien. Tredje delen. Láran om nfiringsmedlen af prof. Hampus von Post" og Landbrukspraktika. Andra delen. Husdjursskötselns hufwud- grunder framst'álta af prof. C. A. Lindqwist". Eg vil einnig geta þess, að eg hefi verið nokkur ár við fjárhirðingu á sum- um hinna helztu fjárræktarbæja í Suðurþingeyjarsýslu, og hefi einnig lítið eitt unnið að fjárhirðingu erlendis. "Við ritgjðrð- ina um uppeldi kálfa" hafði eg einnig til stuðnings 5 hinar síðast töldu bækur. "Við ritgjörðina "um mjaltir á kúm" hafði eg hliðsjón af Kvægets Avl og Pleie" og Malkeköernes Behandling". Ritgjörðina um niðursuðu" skrifaði eg að mestu eftir leiðbeiningum annara, sem við niðursuðu hafa fengizt. Ritinu hefir eigi verið sent annað af ritgjörðum en bending- ar til landbúnaðarframfara" og litið eitt af skýrslum. pess vegna hefi eg orðið að skrifa allt annað sjálfur; og kannvera, að ritið hafi því ekki orðið eins fjölbreytt, sem æskilegt hefði verið. Reykjavík, 3. maí 1887. Hermann Jónasson.