ið er hinn eiginlegi næringarvökvi, og pað er stöðug efnaskifting í blóðinu, sem kemur næringunni til leiðar. Blóðið verður pví að hafa öll pau efni, sem líkaminn parf til að mynðast og haldast við. En vanti pau, líð- ur dýrið sult, og leitar pá ósjálfrátt eftir fæðu. Sum pessi efni gefur blóðið frá sér til líkamans, en önnur fiytur pað á burt frá líkamanum; en í stað pessaraefna terður að veita pví aftur ný efni, og hvert pað efni, sem getur stuðlað til pess, er næringarefni, og pessi efni í sameiningu mynda fóðrið eða næringuna. Til næring- arinnar beyra pví öll efni, sem byggja líkamann upp eða halda honum við. En pótt ekkert næringarefni sé jafnmikið að máli og súrefnið, sem dýrin anda að sér, fii er pað pó eigi í daglegu tali nefnt fóður, af pví að pað veitizt skepnunum fyrirhafnarlaust og að vissu leyti ósjálfrátt. Sömuleiðis er vatnið ekki nefnt fóður í dag- iegu tali, pótt dýrin neyti vanalega ekki jafnmikils punga af nokkru næringarefni sem pví. En að vatnið er ekki nefnt fóður. kemur til af pví, að pað kostar oftast ekki neitt. Ef dýrin eru pví par, sem pau hafa nóg af hreinu lofti og hreinu vatni, parf ekki að athuga pað frekar; en aftur á móti verður pað, sem í daglegu tali er nefnt fóður, að hafa í sér margs kyns efni og í viss- um hlutföllum. í pví purfa að vera bæði organisk efni1 og óorganisk efni'2 í ýmsum samböndum. Dýrin purfa 1) Organisk efni eru þau frumef'nasambönd nofnd, sem einungia Jfoma fyrir í hinni lifandi náttúru, jurtum eða dýrum. 2) (ior'ganisk efni eru öil frumefni nefnd, og þau frumefna- sambönd, sem til heyra hinni dauðu náttúru. Einnig eru þau köll- nð óorganisk, þótt þau séu í hinni lifandi náttúru, ef þau finn- ast í sömu samböndnm í hinni dauðu náttúru. En par eð loftið, sem dýrin anda að sér, og vatnið, sem þau drekka, eru óorganisk efttt, þá verða hér nefnd steinefni öll þau óorganisk efni, sem eru steinkynjuð, málmkynjuð oða jarðkynjuð, og verða eftir sem aska, þegar einhverju er brennt. En at'þeim óorganiskuefnum,sem dýr-