36 Að segja í hvaða hlutfalli efnin eru í heytegundum hér á landi, er ekki unnt, svo pað sé alveg rétt. Eóður- tegundir hér á landi hafa enn ekki verið rannsakaðar svo að neinu liði sé. Hér verður pví að stafa sig áfram með pví, að hafa hliðsjón af útlendum efnarannsóknum og innlendri reynslu. En innlenda reynslan verður að hyggjast á pví, hversu miklar afurðir skepnur hér á kndi hafa getað framleitt af svo og svo mikilli gjöf; sðmuleiðis á hve mikilli gjöf pær hafa haldizt við af pví og pví heyi. Auðvitað er valt að fara eftir pessu; pví að öll reynsla hér um petta atriði er næsta ófull- komin. Sjaldan er heldur að búast við pví, að hirðing og allt, sem að henni lýtur, hafi verið svo sem vera purfti, til pess að ekkert af fóðrinu hafi beinlínis purft að ganga til pess að bæta upp vanhirðuna. Enn er pað, að eðli skepna hér á landi er ópekkt, sókum van- pekkingar á fóðrinn og hirðingunni. J>að er pví ekki hægt að segja, hve sterk meltingarfæri pær hafi, og hve vel pær geti pví melt fóðrið. Ekki heldur hversu pær prífast vel, eða hve mikið pær purfa af næringarefnum, sem geta melzt og tekizt upp í blóðið, til pess pær haldist við eða veiti svo og svo miklar afurðir. Auðséð er pó á mörgu, að heytegundir hér á landi eru mjög góðar, ef heyið er slegið á h?efilegum tíma og vel hirt, ¦svo að pað stendur alls ekki á baki sams konar hey- tegundum erlendis. Enn fremur er pað auðséð, að skepnur hér eru mjög nægjusamar, ótrúlega lífseigar og launa vel allan skynsamlegan tilkostnað. J>að parf ekki annað en líta til pess, að beztu mjólkurkýr hér á landi veita jafnmiklar afurðir í samanburði við tilkostn- að, sem beztu kúakyn í heimi. Og erlendis eru kyn- bótanautgripir keyptir fyrir hundruð og jafnvel púsund- ir króna, sem stauda pó alls ekki framar en beztu kúa- kyn hér á landi.