65 sem 25 kindur gjöra, og verður því minni kostnaður sem fellur á hverja krónuna. Enn fremur liggja meiri opinber útgjöld á pessum 25 kindum, en þeim 16, og kostnaðurinn er meiri við hirðingu þeirra. J>egar pví alls er gætt, verður vanhaldsfóðrið oftast tiltölulega dýr- ara en viðhaldsfóðrið, ef ekki beinlínis, |iá óbeinlínis. J>ó getur staðið svo á, að ekki sé hægt að nota beit til hlítar, án pess að skepnur leggi af, t. a. m. ef bezta beitilandið er langt frá bæ, en par sé pó hvorki hús né hey, pá getur að líkindum stundum verið hagur að pví, að láta skepnur liggja par líti fram eftir haustinu «ða vetrinnm, pótt pær leggi lítið eitt af. J>á er og undantekningar með ýms fleíri atvik, sem ekki er hægt upp að telja. En oft getur staðið sv,o á, að menn séu neyddir til að vanfóðra, annaðhvort ef vetur er óvanalega harður, svo að í heypröng reki, eða sumar hafi verið óvanalega óhagstætt, og heyforði því með minnsta móti, en menn sjái sér þó eigi fært, að eyða svo af stofni sínum, sem þyrfti, ef vel ætti að fóðra. En þegar sv'o stendur á, er margs að gæta. pegar þarf að vanfóðra skepnur, ætti þó að forðast sem lengst fram eftir vetrinum, að þær legðu af til muna. Er það sökum þess, að pegar fitan er mikið til eydd úr bandvef húðarinnar, þá nær loftið meira að verka á skepnurnar, svo að meiri hiti streymir á burtu. Enda er pað algilt lögmál, að af tveimur líkömum, sem eru úr sama efni og hafa sama yfirborð, kólnar sá létt- ari fyr. Tökum tvær járnplötur, sem hafa jafnt yfir- borð, og hitum í eldi, svo að þær verða báðar jafn- heitar í gegn. Nú vegur önnur þeirra 2 pund en hin 1 pund. Síðan eru þær teknar úr eldinum og látnar kólna, þá kólnar sú platan fyr, sem er þynnri, og er Búnaðrrit I. 5