110 gott að strá dálitlu af smágjörðu salti yflr kálíinn. pegar kýrin hefir karað, er algengt að kálfurinn sé tek- inn frá henni, og settur í bás sér. Bezt er að básinn, sem kálfurinn er settur í, sé þannig umbúinn, að kálf- urinn geti verið laus, og básinn sé svo stór, að kálfur- inn geti hoppað og leikið sér lítið eitt í honum. Hit- inn verður og að vera hæfilegur eða um 15"16° C. Enn fremur er áríðandi að loftið sé hreint og gott, og betra er að hitinn sé dálítið minni ei; til var tekið, ef hreint loft fæst eigi með öðru móti. Vel verður að hreinsa básinn og bera moð og salla undir kálfinn, svo að hann haldist vel hreinn. J>á verður og oft að kemba kálíinum og strjúka hann, svo að húðöndunin aukist; pví að pað eykur ei'naskiptin í líkamanum, og gjörir kálfinn hraustari. Enn fremur er gott að pvo kálfinn upp úr köldu vatni endrum og sinnum. Einnig verður að láta káliinn út, pegar gott veður er, ekki sjaldnar en einu sinni í viku, svo að hann geti leikið sér eftir vild. Ef veður leyfir pað ekki, pá verður að láta kálf- inn í framhýsi, par seni rúm er svo mikið að hann geti leikið sór. það er mjög nauðsynlegt að kálfarnir geti haft næga hreyfingu og leikið sér sem ofiast. Við það stækkar brjóstholið og lungun, og öndunarfaírin verða hraustbyggðari. En áríðandi er að öndunarfærin verði sem fullkomnust; pví fullkoninari sein pau eru, pví meiri getur breyting efnanna orðið í líkamanum. En skilyrðið fyrir pví, að mikil mjólk framleiðist, er að efnabreytingin geti gengið fljótt í likamanum. Hreyf- ingin styrkir og alla vöðva líkamans og sömuleiðis meltingarfærin. TJppeldi kálfa verður að stefna að því, að vöxtur peirra verði sem mestur, vöðvar fastir en ekki mjög miklir, og að pað safnist ekki mjög mikil fita á skrokk- inn. Ef kálfarnir eru mjög aldir, og safna mikilli fitu,