Spurningar. / Engar spurningar hafa verið lagbar fyrir búnaðarritið, og þar af leið- ancli flytur það engin svor í þetta sinn. J>ar á móti leggúr ritið eftirfylgjandi spurningar fyrirbændur. og fyrstu tvær spurningarnar sérstaklega fyrir búnaðarskólana. Eru það vinsamleg tilmæli, að sem fiestir vildu senda ritinu svör upp á 8 fyrstu spurningarnar; en svórin verða að vera byggb á nákvæmri reynslu. og að svo sé, verður að sýna um leið og spurningunum er svarab. pó er einkum lögð áherzla á þab, ab Uver einn einasti búandi maður á landinu gjöri sjálfum sér ljóst, hvernig eigi að svara eftirfylgjandi spurningum; enda eru 10 siðustu spurningarnar flestar svo lag- aðar, að svör upp á þær hljóta ab verða mismunandi, sitt hjá hverjum bónda og sitt a bverri jörð. Allt fyrir það, er þó afar- þýðingarmikið fyrir hvern búandi mann. að geta gjört sér ljósa grein fyrir þeim. 1. Hversu mikið að vigt Iéttist hver heytegund. sem er vel þur, frá því hún er látin inn að sumrinu og þar til hún er gefin að vetrinum; hversu mikið léttist hún þakin í hlöbum og óþakin í hlöbum. hversu mikið i tóptum; og hvorsu mikið léttist hvor heytegund, sem hitnar svo, að hún verður jafnbliknub og slær sig svo upp. ab hún verbur mjúk? 2. Hvort er botra, þegar tfb er hagstæb, ab þurka hey svo vel, ab þau haldist græn, eba þurka þau svo lint ab þau blikni? 3. Hvort mjólka kýr betur af bliknaðri töðu eða grænni? 4. Hversu mikla mjólk veitir hver kfr á heimilinu, yfir árið, og hversu mikið smjör? 5. Hversu margir ]>ottar af mjólk fást að meðaltali eftir ærnar yfir sumarið. og hversu mikið smjör? 6. Hvort er betra að nvjólka ær einni mjólt í m'al eða tvennum mjöltum; þegar bæði er litið á mjólkina yfir allt sumarið og holdin á ánum? 7. Hversu þung reyfi fást af þveginni og vel þurri ull að meðaltali af hverri á, hverjum sauð og hverjum gemling? 8. Hvað hafa sauðir og hrútar á öllum aldri lagt sig mest að kjöti og mör, hvað goldar ær, hvað dilkær og dilkar, hvað kvíær og hvað fjallalöiub. Og hvort hefir verið meðaltal yfir allan bú- skapartímann, og hversu langur hefir hann verið?