Búnaðarrit - 01.01.1912, Blaðsíða 46
42
BÚNAÐARRIT.
áður hægt að nytja fyrir vatnaágangi. Vegagerðir mjög
miklar um landareignina. Ibúðarhús hefir Magnús reist
tvílyft 20X14 al. með steinlímdum kjallara undir því
öllu. Járnþakið. Vatni er veitt í húsið. Bygt fjós yfir
16 nautgripi, fjárhús yfir 600 fjár, hesthús yfir 80 hross
og 6 heyhlöður, er taka allar til samans um 1000 hesta.
Alveg óvanalega mikiu hefir Magnús varið til verk-
færakaupa. Má nefna af hinum fágætari: ameríkanskan
sleða, er kostaði með tvennum aktygjum 300 kr., en
flytur í góðu færi, með 2 hestum fyrir, alt að 30 hest-
burði. Þá hefir hann og keypt og notað forardælu og
áburðardreifi. Lagt hefir hann töluverða stund á kyn-
bætur búpenings, sérstaklega hrossa.
Þetta árið voru 14 umsóknir: 1 úr V.-Skf.s., 1 úr Rangv.s,
4 úr Arn.s., 1 úr Iíj. og Gullbr. s., 2 úr Borgfj.s., 1 úr Ilúuav.s,
2 úr Skagafj.s. og 2 úr S.-Þing.s.
Arið 1910.
71. Jakob Jónsson, bóndi á Varmalæk í Borgar-
fjarðarsýslu. Sléttað hefir hann í túni fullar 12 dagsl.,
auk þess túnauki og nátthagi um 5 dagsl. Girðingar
eru afarmiklar um tún og engi, torfgarðar bættir með
vírstrengjum 665 f., vörzluskurðir um 1000 f., gadda-
vírsgirðingar yfir 600 f. Þá eru og mjög miklir fram-
ræsluskurðir á engjum. Matjurtagarðar 300 L]f. Vega-
gerð er mikil um landareignína, þar á meðal engjabrú,
800 f. löng, 4 álna breið, mölborin. Alt lagt í dags-
verk 1750 að tölu, en þá slept vegagerðum og eins ýmsu
af eldri jarðabótum, sem farnar eru að ganga úr sér.
íbúðarhús hefir Jakob reist, tvílyft, með kjallara undir.
Geymsluhús allmikíi. Þrjár hlöður hefir hann bygt stórar,
er allar taka um 1000 hesta, fyrsta hlaðan öll úr timbri,
önnur með veggjum úr torfi og grjóti, þriðja hlaðan með
steinsteypuveggjum. Allar með járnþaki. Safnhús úr
steypu að veggjum og gólfi, með járnþaki. Rúmtak
4446 ten.fet. Fjárhúsið hið nýjasta er úr steinsteypu og