Búnaðarrit - 01.01.1912, Blaðsíða 49
BÚNAÐAKRIT.
45
og bygt mikið og er hér dregið saman í eitt. Sléttað
hefir hann alls í túni um 15 dagsl., auk þess sáðsléttað
3 dagsl. Yarnargarðar og vörzluskurðir um tún og
engjar nema 1000 f. Vatnsveitingaskurðir miklir með
stiflu- og flóðgörðum. Vegagerð töluverð. Komið upp
áburðarhúsi í Skipholti 2160 ten.fet, og steinlimdri safn-
þró 525 ten.íet. Talin fyrirmyndar áburðarhirðing hjá
honum. Á Brjánsstöðum byggir hann baðstofu með
kjallara, þiljaða i hólf og gólf, og stofuhús; í Skálholti
timburhús til íbúðar, með kjallara og skúrum á 2 hliðar,
og í Skipholti íbúðarhús með kjallara undir því öllu og
stórum skúr við, alt járnvarið. Eigi heíir hann síður
bygt peningshús, 3 allstórar heyhlöður á Brjánsstöðum,
spónklæddar og járnklæddar, 3 heyhlöður í Skálholti
stærri en hinar, og loks einar 7 heyhlöður í Skipholti,
og tekur ein þeirra 1000 hesta. Eru víð þá hlöðu penings-
hús með hliðum, og húsið virttil brunabóta 2110 kr. Önnur
peningshús mikil. Og tekið er fram um Guðmund, að
hjá honum sé ágæt fénaðarhirðing.
Þetta árið voru 13 umsóknir: 1 úr N.-Múlas., 1 úr V.-Skf.s.,
1 úr Rangv.s., 3 úr Árn.s., 1 úr Kj. og Gullbr. s., 2 úr Borg.fj.s.,
2 úr Mýras., 1 úr Húnav.s, og 1 úr Skagafj.s.
í þessu yfirliti er, eins og í hinum fyrri, að mestu
fylgt orðalagi sjálfra skýrslnanna. Allar tímaákvarðanir
miðast við árið, sem heiðursgjöfin er veitt.
Ofurlítil drög til búnaðarsögu landsins verða í þess-
um prentuðu skýrslum, sem nú ná yfir 37 ár, og enn
meira má þó fá með því að fara í rituðu skýrslurnar, sem
sumar eru mjög langar og rækilegar.
Þessi 6 ár hafa komið 69 umsóknir, en umsæk-
jendur eru ekki nema 46, því að m'argir hafa sótt oítar
en einu sinni. Flestar eru umsóknirnar nú sem fyr lír
Árnessýslu, 20 talsins, frá 10 umsækjendum. — Af
þessum 12 heiðursgjöfum, sem veittar hafa verið 6 síðast-