Búnaðarrit - 01.01.1912, Blaðsíða 108
104
BÚNAÐARRIT.
Að lokum hefir sýningarnefndin það verk á hendi,
að halda reglu á sýningarstaðnum.
Sá kostnaður við undirbúning sýninganna o. fl.„
auk þóknunar til sýningarnefndar, sem ekki greiðist af
skrifstofufé búnaðarfélagsins, greiðist af sýningarfénu, en
áríðandi er, að hafa þann kostnað sem minstan. Stólpa
o. fl. til undirbúnings á sýningarsvæðinu verður að reyna
að lána á næstu bæjum gegn sanngjarnri þóknun.
Ef sýningarnar eru nokkuð frá bæjum, þarf að vera
tjald á sýningarstaðnum.
Um starf dómnefndanna, og hvernig á að dæma
hross, yrði of langt mái að rita hér að þessu sinni. Að
eins má geta þess, að ekki nægir að dæma hross að
eins eftir ytra útliti, stærð, skapnaðarlagi o. s. frv. þótt
þetta sé mikilsvert og skifti miklu fyrir söluverð þeirra,
heldur verður einnig að gera sér sem bezta grein fyrir
skaplyndi þeirra, ganglagi, ætterni o. s. frv., og einkum
ríður á að vanda til upplýsinga um þessi efni viðvíkj-
andi graðhestunum. Nefnd sú, er dæmir um graðhest-
ana, semur stuttorða lýsingu á hverjum þeim hesti, sem
er sæmdur verðlaunum, og ritar þetta, ásamt verðlauna-
hæðinni, i sérstaka sýningabók, og undirritar. Foiaeig-
endur eiga rétt á að fá afskrift af þeirri lýsingu, ef þeir
óska þess.
Hryssudómnefndin skrifar í sýningabókina þær hryss-
ur, sem eru verðlaunaðar, ásamt hæð verðlaunanna, en
enga iýsingu nema að eins hæðina á herðakamb og ef
eitthvað er að athuga við þann lit á hryssunni, sem tal-
inn hefir verið á sýningarskrá. Helzt ætti þó að semja
nánari lýsingu á I. verðlauna hryssunum. Sýningabókin
er eign Búnaðarfélags íslands.
Hrossasýningar með þessu fyrirkomulagi hugsa eg
mér sem fastar, árlegar stofnanir í helztu hrossaræktar-
héruðum landsins, og ættu þær að vera kostaðar að */*
hluta af héraðinu (sýslusjóðum) og að s/3 hlutum a£