Búnaðarrit - 01.01.1912, Blaðsíða 154
150
BÚNAÐARRIT.
höfð öll varúð. Má þar til nefna óþrifahgar mjaltir,
ólireinar mjaltafötur, vanhirta skilvindu o. s. frv.
Vitanlega má það ekki eiga sér stað, að mjólkinni
sé spilt með úreltu og öfugu mjaltalagi, eða óhreinum
fötum og ilia hiitri skilvindu. — En hvei'nig svo sem
þossu er annars varið, þá á það vera föst, ófrávíkjanleg
regla, að lcœla rjómann undir eins og búið er að nlcilja.
Kælingin bætir meinsemdir rjómans, eða kemur í veg
fyrir að þær magnist tii muna. Sjálfsagt er að kæla
rjómann i svo lcöldu vatni, sem kostur er á. köldu
lindarvatni eða brunnvatni. Ef vatnið er ekki sæmilega
kalt, verður að Jcœla það með ís. Bezt er að ijóminn
sé sem kaldastur.
Hvert eitt og einasta heimili, sem er i smjörbúi,
þarf að koma sér upp ofurlitlu íshúsi. Það kostar ekki
öll ósköp. Þau geta verið með ýmsu móti. Bezt er að
grafa þau í hói eða hæð, undan sól. Hlaða má gryf-
juna innan með hnaus eða streng, og skal gera yfir hana.
Þekja svo ísinn, þegar í giyfjuna er látið, með þurru torfi
og fylla siðan með mómylsnu, heyrudda eða mold upp að
þaki. Á þenna hátt geta menn trygt sér það, að eiga is yfir
sumarið, til þess að blanda samari við vatnið, sem rjóm-
inn er kældur í.
En þegar um þetta er að ræða og fleira, er stendur
í sambandi við rjómann og meðferð hans á heimilunum,
þá ber þess að gæta, að mennirnir eru misjafnir, og
ekki eins góðir eins og þeir ættu að vera. Rjóminn
er misjafn frá hinum einstöku heimilum og verður það
lengi, þrátt fyrir allar pródikanir og umvandanir í því
efni. Menn lesa ekki það, sem um það er skrifað, og
þó þeir geri það, þá fer það inn um annað eyrað og út
um hitt. Það verður að gera eitthvað annað og meira
til þess að bæta rjómameðferðina á heimilunum, en að
ræða og rita um hana. Það vei ður að sýna það í verlc-
inu, að gerður sé munur á góðum og slœmum rjóma.
Ef það ekki gagnar, þá er lítil von urn bata.