Búnaðarrit - 01.01.1912, Blaðsíða 301
BÚNAÐARRIT
297
Nú hef eg loksins komið mykjuflutningnum svo
fyrir, sem mér líkar, og tek nú ekki nærri mér lengur,
að auka mykjuna með moldaríburði í fjósið.
Vil eg nú reyna að lýsa þessu mykjuflutningstæki
— mykjuferju mætti kalla það — ef einhverir, sem
löngun hafa til að létta fjósaverkin og drýgja áburðinn,
, vildu taka það upp.
Eftir endilöngu haughúsinu, sem innangengt er i
úr fjósinu, er braut uppi undir mæni, úr tré, 16 sm. á
breidd og 5 sm. á þykt. Brautarendinn, sem fjær er
fjósinu, er festur á gaflaðið á haughúsinu nál. V2 m.
undir mæni. Annarstaðar er brautin fest, upp í sperr-
urnar með mjóu galv. gjarðajárni, þannig að 2 göt eru
gjörð á brautina, undir hverri sperru, sitt hvoru megin
við miðju, með 2—3 sm. millibili. Gjarðajárnsbút, sem
beygður er í keng, er stungið upp í gegnum götin, sín-
um enda í hvort gat, og endar járnsins svo negldir upp
í sperruna; hangir svo brautin í þessum járnkengjum.
Af þeim enda brautarinnar, sem að fjósinu veit, er
fjögra m. lengd ekki fest upp í sperrurnar. Sá hluti
brautarinnar er festur við aðalbrautina með sterkum
hjörum, svo að endinn á brautinni getur lagst skáhalt
niður að gólfl. Á þeim enda brautarinnar er skegla
(blökk) með hjóli og önnur uppi í rnæni þar uppi yfir.
Um þessar skeglur liggur kaðall; er annai endi hans
festur upp í mæni, en hinn um vindu við enda braut-
arinnar; með vindu þessari er brautarendanum lyft, eins
og síðar verður sagt. Eftir brautinni gengur kassi, 70
sm. langur, 54 sm. br. og 42 sm. djúpur; í honum er
mykjan flutt. Á hvorum enda kassans eru 2 sterkir
okar með 20 sm. millibili, jafn-langt frá báðum hliðum.
Taka okar þessir 28 sm. upp af kassagöflunum. í gegn-
um efri enda hvers oka stendur járnás, og leikur sitt
hjólið á hverjum ás, innan á okunum; er ágætt að hafa
til þess hjól af gömlum ónýtum skilvindum, sem viða
eru til. Á þessum 4 hjólum veltur kassinn eftir braut-