Búnaðarrit - 01.01.1912, Blaðsíða 305
BÚNAÐARRIT
301
eíni á að eignast hann. En kostnaðurinn er ekki svo
mikill, sem svarar verði á árs-þvagi undan tveimur kúm,
eítir því sem Torfi í Ólafsdal metur það í ritgerð sinni
um áburð í 10. ári Andvara. Kostnaðinn ætti því að
vera auðvelt að fá endurgoldinn fljótlega.
Hjá mér kostaði alt efnið í brautina, 1G m. langa,
kassann og vinduna o. fl. um 25 kr. Smíðið hygg eg
að mundi verða nál. 4 dagsverkum, þegar fyrirmyndin
er fengin; hjá mér fór meiri vinna í það.
Ekki verður þessum Utbúningi komið við, nema þar
sem haughUs eru. Þau eru enn óvíða, en koma á næstu
árum. Ættu menn að gæta þess, þegar haughUs er
bygt, að setja það haganlega við fjósið, svo mykju-
fer-junni verði komið við, og gleyma þá ekki að hugsa
moldinni fyrir hUsnæði, til þess að geta fljótt fengið
uppborinn kostnaðinn við hús og ferju, með auknum
áburði.
Bændur ættu að hugsa um það meira en gert hefir
verið, að bæta fjósin og létta fjósaverkin, eða gera þau
skemtilegri. Fjósin þurfa að vera rúmgóð, loftgóð, björt
og hlý, með steinlímdum flór, vatnsleiðslu inn — sjálf-
rennandi eða með dælu — og innangengt í haughUs með
mykjuferju. Þá getur fjósamaðurinn verið þur og hreinn
inni, og fjósaverkin verið þægilegt og skemtilegt starf.
Og þá mjólka líka kýrnar betur, ef fjósamaðurinn er í
góðu skapi. Þær eru ekki eins og pUkinn hjá Sæmundi
fróða, sem fitnaði af vonzkunni í fjósamanninum.
Útbúningur þessi við mykjuílutninginn kom mér
fyrst til hugar eitt sinn, er eg kom í verzlunarbUð Le-
foliis á Eyrarbakka. Þar gengur virstrengur eftir endi-
löngu húsinu, uppi við loft; á honum hangir á hjólum
litill kassi, sem viðsldftabækur eru íluttar í milli sölu-
deilda verzlunarinnar. Færði eg hugmyndina svo í tal
við Jón bUfr. Jónatansson, sem er allmikill vélfræðingur;
leizt honum vel á þetta og gaf mér ýmsar góðar bend-
ingar við UtbUnaðinn og gerði teikningu af honum.