Alþýðumaðurinn

Tölublað

Alþýðumaðurinn - 17.02.1931, Blaðsíða 2

Alþýðumaðurinn - 17.02.1931, Blaðsíða 2
2 ■ ALÞÝÐUMAÐtJRINN firði voru s-vo sigurglaðir yfir þessu, að þeir lánuðu »Mogga« ritstjór- ann að blaði þeirra þar vestra, og höfðu jafnvel við orð að leggja »Vesturland« niður, því að »Skut- ull< ynni miklu meira fyrir þá, en þeirra eigið blað gæti gert. Eftir að þeir Erl. Friðjónsson og Einar Olgeirsson byrjuðu að deila í »Vkm.«, og kommúnista-»sellan« hér var í fæðingunni, var engu líkara en margir íhaldsmenn hér gengju með jóðsótf. Svo mikinn hvalreka töldu þeir það á sínar fjörur, að sundur dragi með for- göngumönnum verklýðshreifingar- innar, að þeir gátu ekíci dulið eftir- væntingu sína og gleðivon. í vetur fláug það fyrir að stækka ætti út- gáfu »íslendings« um helming nú um áramótin. Frá þessu hefir ver- ið horfið, og haft er eftir einum ráðandi íhaldsmanni í bænum, að íhaldið mætti taka lífinu rólega hvað blaðaútgáfuna snerti, »Verkam.«, í höndurn kommúnista, myndi vinna íhaldinu miklu meira gagn en stækkun »ísl.« myndi gera. Petta er alveg rétt athugað hjá íhaldinu, svo fremi sem kommúnistar fara þær leiðir, er þeir þykjast ætla að fara. Niðurstöðurnar, sem af þessu verða dregnar, eru þá þessar: a. Pað sem hægfara- og hrað- fara jafnaðarmönnum í raun og veru ber á milli, er að Ieiða að því takmarki, sem alþýðusamtökin stefna að. b. Stofnun Kommúnistaflokks íslands var fljótræðisflan, bygð á stundargremju hávaðamanna Al- þýðuflokksins c. • Kommúnistaflokkurinn hefir engin nýtileg stefnuskráratriði, önn- ur en þau, er Alþýðuflokkurinn hefir. d. Kommúnistar, Alþýðuflokkur- inn og yfirleitt allur verkalýður lándsins tapar á stofnun K. F. í. Verklýðshreifingunni er því gerður skaði með stofnun hans. e. íhaldið eitt fitnar pólitískt á kommúnistunum og aðstaða þess batnar í landinu. Að þessu öllu athuguðu þarf engan að undra, þó gætnari menn Alþýðuflokksins noti styrk sinn til að hrinda af skákinnr þeim mönn- um, sem hafa gert sig bera að meiri félagsmálaglópsku, en íhaldinu væri ætlándi; flokki, sem þó hefir enga hugsjón til að berjast fyrir. GLEIÐGOSINN Gamanleikur í 3 þáttum. Eftir Kurt Kraatz og A. Hoffmann. Margir hafa búist við því, að eftir andlát Leikfélagsins myndi ekki verða mikið um leiksýningar í vet- ur. En nú hefir ungt og áhuga- samt fólk hér í bænum tekið sig saman og vgkið upp gleiðgosa þann er hér var á ferðinni í fyrra, en aldrei var sýndur. Er hann, eins og flestar afturgöngur, orðinn magn- aður nokkuð. Leikurinn gerist í smáborg suður í Þýzkalandi, og er mest um kosn- ingabrellur. Dittmar byggingameistari býður sig fram með stuðningi sijórnar- sinna, en tengdasonur hans, Ferber, býður sig fram með stuðningi jafn- aðarmanna. Dittmar er liðsterkari, en þá kemur Gleiðgosinn til sög- unnar og snýr öllu við, og Ferber kemst á þing, Leikendur eru 18 og flestir óvan- ir. Þó má segja að leikurinn tak- ist yfirleitt vel. Gleiðgosinn (Dr. Winternitch) er leikinn af Jóni Norðfjörð. Fer hann mætavel með aðalhlutverkið. Leik- ur hann af miklu fjöri og fatast aldrei. Flann er altaf sami »gleið- gosinn« og »gliðnar« ekki fyr en síðast, en þá á það við. Dittmar byggingameistara leikur Porkell V. Ottesen sprenghlægilega. Ffefir hann ágæta tilburði. Amelíu, konu Ditt- mars, leikur frú Emelía Jónasdóttir. Sýnir hún vel skapmikinn kerlingar- varg. Stöger aðstoðarkennara leik- ur Skjöldur Hlíður ágætlega. Er hann nýr á leiksviði og fer vei af stað. Línu Schwartz leikur Elsa Friðfinnsson. Er það stórt hlut- verk og prýðilega með farið. Gunn- ar Magnússon leikur fursta. Er leikur hans mikið laglegur og til- gerðarlaus. Sömuleiðis fara þær ungfrúrnar Ásta Júlíusdóttir, Gígja Bebensee og Margrét Steingríms- dóttir mjög laglega með hlutverk sín. — Hin hlutverkin voru misjafn- lega með farin, en flest þó sæmi- lega. Á þetta unga fólk þakkir skilið fyrir áhuga sinn á leiklist og góða skemtun. Afmælishátíð Verkamannafélagsins Föstud. 6. þ. m. fór hið besta fram. Þátttakendur eins og húsrúm leyfði og blærinn yfir samkomunni eins og hann átti að vera. Halldór Friðjónsson mælti fyrir minni félagsins, Erl. Friðjóns- son fyrir minni Alþýðuflokksins og Steinþór Guðmundsson fyrir minni Alþjóðasamtaka verkalýðsins. Á eft- ir ræðunum var sungið. Aðalbjörn Pétursson sýndi um 100 skugga- mvndir frá Rússlandsför hans s. 1. sumar og skýrði þær. Tón Norðíjörð söng gamanvísur og síðast var dansað. Félaginu bárust eftirfarandi heilla- óskaskeyti: »Fram til öfiugrar baráttu fyrir frelsiskröfum alþýðunnar og heil- steyptu Alþýðusambandi íslands. Þökkum aldarfjórðungsstarf. Félag ungra jafnaðarmanna, Rvík« »Sendum starfsbræðrunum bestu félagsóskir og árnaðarkveðju út af aldarfjórðungsafmælinu. Verkamanafélaglð Hlíf, Hafnarfirði.* »Óskum ykkur kærlega til ham- ingju með aldarfjórðungsafmæliö ykkar, og minnist þess, að þið á næstu aldarfjórðungum treystið mætti samtakanna og starfið heilir og giftu- samlega að málum verkalýðsins. Verkamannafélag Sigufjarðar.« »í>ökkum ykkur mikið og gæfu- ríkt starf í þágu stéttabaráttunnar á liðnum árum og óskum ykkur allrar gæfu í framtíðinni, og þess aö hátíðarstundin í dag megi verða til þess fyrst og fremst að treysta bræðraböndin og tryggja varanleg

x

Alþýðumaðurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðumaðurinn
https://timarit.is/publication/597

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.