Alþýðumaðurinn

Tölublað

Alþýðumaðurinn - 04.09.1934, Blaðsíða 1

Alþýðumaðurinn - 04.09.1934, Blaðsíða 1
Nýung í íslenskum stjórn- málum. Fimm manna nefnd skipuð til að rannsaka hag og rekstur atvinnuvega þjóðarinnar, gera tillögur um breytingar á þeim, og benda á nýjar leiðir til aukinnar atvinnu í landinu. Samkvæmt 1. atriði samninga þeirra, er Alþýðuflokkurinn og Fram- sóknarílokkurinn gerðu með sér áður en þeir gengu tii sameigin- legrar stjórnarmyndunar — um bráðabirgðaverkefni stjórnarinnar — hefir ráðuneytið nú skipað fimm manna nefnd »til að gera tillögur og áætlanir um aukinn atvinnu- rekstur og t'ramkvæmdir framleið- enda f landinu, svo og aukna sölu afurða utan- og innanlands. (Sé lögð áhersla á að efla þann atvinnu- rekstur, sem fyrir er og rekinn er á heilbrigðum grundvelli, enda kom- ið á opinberu eftirliti með hvers- konar stórrekstri til tryggingar því að hann sé rekinn í samræmi við hagsmuni almennings. Opinberar ráðstafanir verði síðan gerðar til aukningar atvinnurekstri í landinu, eftir því sem þurfa þykir og við geturátt.«). Pannig hljóðar 1. samn- ingsatriðið orðrétt, og er í samræmi við 1, og 2. gr. 4. ára áætlunar AI- þýðuflokksins, en vitaskuld er þess- ari nefnd ekki ætlað annað en að rannsaka afkomu og rekstur aðal atvinnufyrirtækja þjóðarinnar og gera tillögur um breytingar á rekstri þeirra og stofnun annara nýrra- Er þetta í fyrsta sinn í sögu fs- ienskra stjórnmála að slíkar ráð- stafanir sem þessar eru gerðar, enda á nú Alþýðuflokkurinn í fyrsta sinn að fagna þeirri aðstöðu á lög- gjafarþingi þjóðarinnar, að hann geti krafist þjóðnýtra framkvæmda af þingi og stjórn. íhaldið og kommúnistar fjand- skapast við þessa nefndarskipun. íhaldið vill láta athafnalíf þjóðar- innar og atvinnuvegi álpast áfram, athugunar- og eftirlitslaust, eins og verið hefir, en kommúnistar hræð- ast allar tilraunir til aukinnar at- vinnu í landinu, minkandi sult og skynsamlega skipulagningu atvinnu- veganna. Er það trygging þess að hér sé sveigt inn á rétta braut, að báðir þessir aðilar skuli fjandskap- ast við málið. í nefndina hafa verið skipaðir þessir þrír Jafnaðarmenn og tveir Framsóknarmenn: Héðinn Valdi- marsson framkvæmdastjóri og al- þingismaður, og er hann formaður, Emil Jónsson, bæjarstjóri og al- þingismaður, Ásgeir O. Stefánsson, framkvæmdastjóri bæjarúigerðar- innar í Hafnarfirði, Jónas Jónsson, samvinnuskólastjóri og alþingis- maður, Steingrímur Steinþórsson, skólastjóri á Hólum. — Allir eru mennirnir framsæknir og ötulir starfsmenn og sérfróðir um margt er lýtur að atvinnurekstri þjóðar- innar, Hefir nefndin vald til að « NYJA-BIÓ B Miö vikudagsk v. kl. 9; Tal- og hljómmynd í 10 þátt- um. — Aðalhlutverkin leika: NILS ASTEHR og Barbara Stanwyck. Mynd þessi segir ástarsögu milli kínversks ræningjaforingja og amerískrar stúlku, og er víða afar hugðnæm og hrífandi. SÝND í SÍÐASTA SINN. — Börn fá ekki aðgang. — heldur fund í bæjarstjórnarsalnum Sunnudaginn 9. þ. m, kl. 3Y2 síðd. Dagskrá verður tilkynnt með fundar- boði. Akureyri 4. Sept. 1934. Félagsstjórnin. heimta skýrslur af einstaklingum og hluíaféiögum um rekstur þeirra, af- komu og hag allan, eftir því sem henni þurfa þykir. Mætti starf hennar bera þann árangur sem til er ætlast. Nýlátin er á Hömrum ekkjan Sig- urbjörg Jóhannsdóttir, 84 ára gömul.

x

Alþýðumaðurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðumaðurinn
https://timarit.is/publication/597

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.