Alþýðumaðurinn


Alþýðumaðurinn - 26.04.1949, Blaðsíða 4

Alþýðumaðurinn - 26.04.1949, Blaðsíða 4
4 ALÞÝÐUMAÐURINN Þriðjudaginn 26. apríl 1949 AF NÆSTU GRÖSUM Síðasta ■ sala Kaldbaks var 3647 kits fyrir 10.854 sterlings- pund. Togarinn seldi í Fleet- wood. * Ritstjóraskipti hafa orðið við blaðið Islending, Eggert Jónsson hætt, Jakob Ó. Pétursson tekið við. * Hannes J. Magnússon, skóla- stjóri er farinn utan til Dan- rrerkur sér til heilsubótar vegna afleiðinga mænuveikinnar. Eldsvoði Á sumardaginn fyrsta varð eldur laus í skúr, sem Vélsmiðj- an Atli átti við Sjávargötu. — Voru þar ýmsar aflvélar tilheyr andi vélsmiðjunni,og m. a. fór þar öll logsuða vélsmiðjunnar fram, og voru þar allmiklar birgðir af logsuðuvír. Einnig voru þar 4 mótorhjól inni. Eldurinn mun hafa orðið laus um kl. 1,30 e. h., en veður var þá éljótt og mun ekki hafa orðið eldsins vart þegar. Var skúrinn c-rðinn alelda er slökkviliðið kom á vettvang, og brann skúrinn til kaldra kola og allt, sem inni var. Vátrygging var lág — ekki riema 15 þús. kr. — og er skaði eigendanna mjög tilfinnanlegur, þar sem líka örðugt mun að afla nýrra véla. Spilakvðld halda Alþýðuflokksfélögin á Akureyri n. k. föstudags- kvöld að Hótel Norður- landi, kl. 8,30 s. d. Spiluð verður félagsvist og verðlaun veitt. Dans á eftir. Félagar eru beðnir að koma með blýanta og spil og mæta stundvíslega. Alþýðuflokksfélag Akureyrar, Kvenfélag Alþýðuflokksins, Félag ungra jafnaðarmanna. Skíðamót Islaods 1949 Sumardaginn fyrsta hófst Skíða- mót íslands 1949 að Kolviðarhóli og höfðu þá 135 keppendur skráð sig til mótsins, langflestir frá Reykjavík, en einnig frá ísafirði, Akureyri, Siglufirði og úr Þingeyjarsýslu. Keppnigreinar voru svig karla og kvenna, brun karla og kvenna og stökk og ganga karla. Mótinu lauk í gær og hafði þá tekizt að mörgu leyti hið bezta þrátt fyrir stirt veðurfar. — Helztu úrslit voru þessi: Svigmeistari kveuna varð Ingi- björg Árnadóttir, Rvík, en brun- „meistari Sólveig Jónsdóttir, einnig frá Reykjavík. Isfirðingar unnu 4x10 km. skíða- göngu. Jóhann Jónsson, Strandasýslu, varð meistari í 18 km. göngu og unnu Strandamenn sveitarkeppni í þeirri göngu. Svigmeistari varð Ásgeir Eyjólfs- son, Rvík, en ísfirðingar unnu 4 manna sveitarkeppni í svigi og þar með sæmdarheitið „bezta svigsveit íslands“. Meistari í stökki varð Jónas Ás- geirsson, Siglufirði, en brunmeist- ari varð Stefán Kristjánsson, Rvík (Húsvíkingur) og einnig meistari í tvíkeppni í svigi og bruni. Meistari í tvíkeppni í göngu og stökki varð Haraldur Pálsson, Siglufirði, en næstur honum þar varð Guðmundur Guðmundsson, Akureyri. Þingeyingar sendu mikla sveit manna til skíðagöngunnar, og gerðu sér góðar vonir um sigur þar, enda leit um skeið út fyrir, að þeir mundu sigraj í 4x10 km. boðgöngu, en þá vildi það slys til, að bezti göngu- maður þeirra, Jón Kristjánsson, tognaði á fæti og gat eigi lokið keppni, og eigi heldur keppt í 18 km. göngu. Akureyringar urðu fyrir því milcla óhappi, að snjallasti svigmaður þeirra, Magnús Brynjólfsson, meidd- ist á fæti í sveitarkeppni í svigi. Gat hann því eigi keppt um svigmeist- aratitilinn né brunmeistaratitilinn, en við hann voru miklar sigurvonir bundnar þar. Gerist áskrifendur að ALÞYÐUMANNINUM Jarðarför bróður okkar, SIGURGEIR8 MAGNtSSONAK, sem andaðist 18. þ. m., fer fram frá Akureýrarkirkju miðvikudaginn 27. apríl kl. 2 e. h. Systkini liins látna. ömmusystir mín, GUÐRtN bkynjólfsdóttir frá Vestmannaeyjum, andaðist að heimili mínu, Glerár- götu 1, laugardaginn 23. þ. m. — Jarðarförin auglýst síðar. Þórunn Kristjánsdóttir. > Frá Barnaskölanam Próf í skólanum hefjast með almennu landsprófi mánu- daginn 2. maí kl. 8,30 árdegis, og mæti þá einnig börn, sern hafa fengið undanþágu frá skólagöngu í vetur. Miðvikudaginn 11. maí mæti öll 7 ára börn, fædd 1942, til skráningar og prófs kl. 1—3 síðdegis. Geti barn ekki komið þarf að tilkynna það. Kennsla í vorskólanum hefst mánudaginn 16. maí kl. 9 f. h., og mæti þá öll börn fædd 1940, 1941 og 1942. Skólaslit fara fram föstudaginn 13. maí kl. 2 síðdegis. Sundnámskeið fyrir börn úr 5., 6. og 7. bekk hefst í sundlauginni mánudaginn 16. maí kl. 10 árdegis. Mæti þar öll börn úr þessum aldursflokkum, sem hafa ekki lokið sundprófi. Akureyri, 25. apríl 1949 SKÓLAST J ÓEINN. Geymið blaðið! „Landsins íorni tjandi,, hafísinn, sveimar nú fast upp við Vestfjarðaskagann og skammt undan hér við Norður- landið. Samkvæmt fréttum á sunnu- daginn var sá til samfelldrar Iiafísbreiðu skammt út af Horni, en talsverður íshroði orð inn landfastur. Þá varð íss vart út af Reykjarfirði á Ströndum, og nokkurs íshroða hefir orðið vart út af Kálfshamarsvík á Skaga og Siglunesi. Einnig er mikill is sagður að sjá frá Grímsey austur og norð- vestur af eynni, svo langt sem séð verður, og sjávarhiti er þai kominn niður í ~ 4°. Kalt hefir verið í veðri hér norðanlands um skeið, sérstaklega var sum- ardagurinn fyrsti kuldalegur á svpinn. Nokkuð ber á kvxða hjá bænd Þjóðsögur Jóns Árnasonar, I,—II. bindi. Árerit Fræðafélagsins, samstætt. Ævisaga Jóns Thorkelssonar, skólameistara. Fornaldarsögur Norðurlanda I.—III. Þjóðsögur Sigf. Sigfússonar, samstætt og ótal margt fleira. Bókaverzlun Björns Arnasonar. um um heyskort, ef seint vori, og þarf ekki að ganga að því gruflandi, að hér geta gerzt ugg vænleg tíðindi, verði ísavor. Hinir bjartsýnu segja aftur: „Kannske að blessuð síldin gef- ist nú ríkulega í ár.“Og auðvit- að vonum við öll, að hinir bjart- sýnu sjái alltaf rétt!

x

Alþýðumaðurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðumaðurinn
https://timarit.is/publication/597

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.