Dýraverndarinn


Dýraverndarinn - 01.12.1951, Blaðsíða 6

Dýraverndarinn - 01.12.1951, Blaðsíða 6
60 DÍRAVERNDARINN Jón Helgason: Á aímæli kattarin§ Viðsjárverð þykir mér glyrnan gul, geymir á bak við sig marga dul, óargadýranna eðli grimmi á sér í heilanum fylgsni dimmt. Alla tíð var þó með okkur vel, einlægt mér reyndist þitt hugarþel, siðan ég forðum þig blindan bar, breiddi á þig sæng þegar kaldast var. Fimm voru systkinin fædd í heim, fagnar þú degi liið eina af þeim; hinum var öllum í æsku drekkt, ósköp er kattlífið dapurlegt. Mjúkur, með kirfileg kampahár kemurðu að dyrum í morgunsár, upp þig úr munnvatni allan þværð, augunum lygnir í sæld og værð. Úlundin margsinnis úr mér rauk er ég um kverk þér og vanga strauk, ekki er mér kunnugt um annað tal álíka sefandi og kattarmal. Trýnið þitt starfar og titrar kvikt, tekst því að skynja svo marga lykt, þar sem mér ekki með allt mitt nef unnt er að greina hinn minnsta þef. Bugðast af listfengi loðið skott, lyfiist með tign er þú gengur brott; aldrei fær mannkindin aftanverð Sofandí köttur. (Ljósm.: jón Kaidai.) ^ v{fi þ(g jafnazt að sundurgerð. Lifað nú hefur þú árið eitt, oddhvöss er vigtönnin, klóin beitt; stundum á kvöldin með kurteis hljóð kveðurðu af munni fram ástaljóð. Andvakan þykir mér yfrið löng unz ég í garðinum heyri söng, hugurinn glaðnar þá heldur til, hlægir mig dillandi raddarspil. „..... stundum á kvöldin með kurteis hljóð kveðurðu af munni fram ástaljóð." Til munu þeir sem það tónverk lízt tilkomulítið, en eitt er víst: læðan sem kúrir í leyndum stað leggur við eyrun að hlusta á það.

x

Dýraverndarinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dýraverndarinn
https://timarit.is/publication/598

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.