Alþýðumaðurinn


Alþýðumaðurinn - 09.10.1962, Blaðsíða 1

Alþýðumaðurinn - 09.10.1962, Blaðsíða 1
XXXII. árg. Þriðjudagur 9. október 1962 34. tbl. í dyrum kornhlöðunnar ó Ljósavotni. Talið fró vinstri. Bjarni Pétursson, Fosshóli, Árni Kristjónsson, Akureyri og bræðurnir Hreinn og Björn Þórhallssynir, Ljósavatni. — Ljósm. Kjartan Stefónsson. Meg raun oj kðrnrátinni þrdtt fyrir kalt sumar og óhagstieða veðrdttu Raeft við Bjarna Pétursson á Fosshóli, aðalhvatamann að kornræktartilraununum í Öxarór- og Einarsstaðalandi Svo sem kunnugt er af fréttum stofnuðu um 25 bændur í Ljósa- vatns- og Reykdælahreppum í S,- Þing. með sér félag í fyrra til kornræktunar. Aðalhvatamaður þessa var Bjarni Pétursson, bóndi og símstöðvarstjóri að Fosshóli. Brotið var allstórt land í þessu skyni að Oxará, innsta bæ í Ljósa- vatnshreppi, og Einarsstöðum í Reykjadal, og í vor var sáð byggi í 33 ha lands að Öxará og 13 að Einarsstöðum. Alþm. hitti í s.l. viku Bjarna Pétursson að máli og innti hann eftir kornræktartilraunum þess- um. — Telur þú, að kornrœktin hafi borgað sig að þessu sinni? — Eg tel, að hún hafi gefið sæmilega raun, þegar litið er á allar aðstæður, því að sumarveðr- áttan var ekki hagstæð, köld, og í haust urðum við fyrir sköðum af völdum hvassviðris. Gæti áætlað, að fokið hafi úr öxum á 2. hundr- að tunnur, þó að aldrei verði um það sagt. — Er stofnkostnaður við korn- Tœkt mikill? — Fyrir utan ræktunarkostnað- inn er talsverður vélakostur svo sem sáðvél, uppskeru- og þreski- vél svo og kornþurrkunartæki. Þeim höfum við fengið stað að Ljósavatni í kornhlöðu þar, og þar er allt kornið þurrkað og sekkjað. — Hvaða byggtegundum sáðuð þið? — Aðallega Eddu, Jötni, og Floyu, síðastnefnda teg. var feng- in frá Sámsstöðum. Um uppskeru- magn hverrar tegundar fyrir sig get ég ekki sagt enn. — Er ekki kornrœktin áburðar- frek? — Jú, en þó má ekki nota áburð í óhófi. Þá getur farið meiri vöxt- ur í grasið eða hálminn en góðu hófi gegnir og tafið fyrir korn- mynduninni og þroskun þess. — Eruð þið búnir að uppskera allt korn nú (2. okt.) ? — Nei, kornskurði er lokið að Öxará og við ljúkum vonandi við Einarsstaðaakrana í þessari viku, ef veður verður sæmilega hag- stætt. Það er illmögulegt og raun- Fyrsti pokinn of þurrkuðu korni, sem seldur var. Ljósm. Kjartan Stefónsson. ar ógerlegt að slá og þreskja nema þurrt sé. — Fylgjast bœndur í Þingeyjar- sýslu ekki af áhuga með þessum tilraunum ykkar? — Ég held óhætt að segja það og margir fleiri. Annars er þetta ekki fyrsta kornræktartilraun í Þingeyj arþingi á okkar tíð, þótt í stærstum stíl sé. Korn (bygg) hef- ur verið ræktað í Fnjóskadal, svo ég veit til og Hörður Jónsson, sem reisti sér heiðarbýlið Gafl innst í Seljadal eða nánast á Fljótsheiði sjálfri, ræktaði þar bygg, svo að Nkólar bæjarini teknir til itarfa Um 2380 nemendur sfunda þar nóm. í sl. viku voru allir skólar hér á Akufeyri settir og full kennsla mun víðast hafa hafizt með þess- ari vikubyrjun. Menntaskólinn var settur sl. þriðjudag af Þórarni Björnssyni, skólameistara. Nemendur skólans eru 440—450 og er það líkur nem- endafjöldi og sl. vetur. Bekkjar- deildir eru 17 og auk þess bú- fræðideildin, sem er annað hvort ár, og eru nemendur hennar um 10 talsins. Enginn 1. bekkur er í vetur sökum rúmleysis og mun það upphaf þess, að miðskóla- deildin hverfi við skólann, þegar núverandi 2. bekkur hefur gengið upp. Breytingar á kennaraliði eru miklar. Af föstum kennurum hafa horfið frá skólanum Friðrika Gestsdóttir og Skarphéðinn Pálmason, sem bæði hafa flutzt til Reykjavíkur. En þessir stunda- kennarar hætt: Kristján Árnason, Helgi Hallgrímsson, sr. Pétur Sig- urgeirsson, sr. Björn 0. Björns- son og Þórhildur Steingrímsdóttir. Ráðnir hafa verið tveir fastir kennarar: Friðrik Sigfússon frá Reyðarfirði, er lokið hefur há- skólanámi í ensku í Cambridge í Englandi, og Helgi Jónsson, raf- magnsfræðingur. Þá eru ráðnir stundakennarar: sr. Hákon Lofts- son, Hörður Kristinsson, sem stundar náttúrufræðinám í Þýzka- landi, Hólmgeir Björnsson, sem lokið hefur æðra búfræðinámi í Svíþjóð, Héðinn Jónsson, er stundar frönsku í París. Bryndís Þorvaldsdóttir er ráðin leikfimi- kennari stúlkna, en Ingibjörg Þórarinsdóttir umsjónarkona í kvennavist og skrifstofudama auk einhvérrar kennslu. Gagnfrœðaskólinn var settur sl. þriðjudag af skólastj óranum Jó- hanni Frímann. Nemendur eru 590 og bekkjardeildir 23. Kennarar eru 33. Skólinn verð- ur að leigja 4 skólastofur utan skólahússins, sem hvergi nærri rúmar lengur alla nemendur gagn- fræðastigsins, en hafin er við- bygging við skólann, svo sem kunnugt er, og er hún að rúm- prýðilega þroskað varð, að því er Klemenz á Sámsstöðum hefur skýrt frá. Fleira var ekki rætt við Bjarna Pétursson að sinni um kornrækt- ina í Þingeyjarþingi, en óhætt er að fullyrða, að margir óska hon- um og félögum hans velfarnaðar með þessa nýju búgrein og vona af heilum hug, að hún megi vaxa og vel dafna. máli nær jafnstór núverandi skóla- húsi. Við setningu skólans minntist skólastjóri sérstaklega tveggja lát- inna manna: Erlings Friðjóns- sonar, sem var aðalhvatamaður á alþingi að stofnun skólans, og Konráðs Vilhjálmssonar, lengi kennara við skólann. Þrír nýir, fastir kennarar liafa ráðizt að skólanum: Jónína Helgadóttir, Einar Helgason og Héðinn Jóns- son. Nýr stundakennari er Jensína Jónsdóttir. Bernharð Haraldsson, sem kennt hefur við skólann und- anfarið, hefur hætt kennslu þar og horfið að háskólanámi. Árni Jóns- son og Þórður Gunnarsson, áður fastir kennarar við skólann, kenna þar nú sem stundakennarar. Iðnskólinn var settur fyrra mánudag. Skólastjóri er Jón Sig- urgeirsson. Kennsla fer fram í Húsmæðraskólanum og Gagn- fræðaskólanum, en stefnt er að nýbyggingu skólans innan tíðar á lóð við Þórunnarstræti. Nemend- ur verða væntanlega alls um 120 í vetur í 4 bekkjardeildum. Kenn- arar eru 13. Barnaskóli Akureyrar var settur fyrra mánudag af skólastj óranum Hannesi J. Magnússyni. Nemend- ur eru 775, kennarar 24. Nýir, fastir kennarar eru Baldvin Bjarnason, Guðný Matthíasdóttir og Aðalsteinn Vestmann í stað Einars Helgasonar, Ásdísar Karls- dóttur, Jensínu Jensdóttur og Steinunnar Davíðsdóttur, sem hverfa írá skólanum. Ólöf Frið- riksdóttir hefur verið ráðin hjúkr- unarkona skólans, í stað Guðnýj- ar Magnúsdóttur, sem hætti því starfi. (Framhald á 4. sítfu.) 74 greiddu atkvæði um uppsögn samninga Stjórn Verkamannafélags Akur- eyrarkaupstaðar efndi í sl. viku til allsherjaratkvæðagreiðslu meðal félagsmanna um uppsögn kaup- og kjarasamninga. Stóð allsherj- aratkvæðagreiðslan í þrjá daga: fimmtudag og föstudag, 3 tíma hvorn daginn, og laugardag í 5 tíma. 74 félagsmenn greiddu atkvæði. Vildu 68 láta segja samningum upp, en 6 ekki. Um sl. áramót voru félagsmenn V.A. skráðir liðlega 450, svo að þátttakan í umræddri atkvæða- greiðslu hefur verið um 16%. Stjórn félagsins hefur nú sagt upp samningum félagsins.

x

Alþýðumaðurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðumaðurinn
https://timarit.is/publication/597

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.