Hugur - 01.01.2002, Blaðsíða 96

Hugur - 01.01.2002, Blaðsíða 96
Hugur Jón Ólafsson held að þessi einstaklingsbundnu rök geti líka átt við um samfélagið. Siðfræðin hlýtur að koma fram sem hin gagnrýna íhugun í rökræðu sam- félagsins um hvað sé því og einstaklingum þess fyrir bestu. Þetta er mjög mikilvægt atriði. Það kann að vera nokkuð til í því hjá Vilhjálmi að íhugun einstaklingsins hljóti að leita út fyrir það sem með góðu móti má kalla siðfræði, til dæmis inn á brautir bókmennta og lista. Sjálfsíhugun samfélagsins, samræða samfélagsins við sjálft sig, hlýtur hinsvegar stöðugt að láta reyna á gildismat og gagnrýna það á forsendum siðfræðinnar. Þannig virðist mér að í sjálfri hugmyndinni um gagnrýna siðfræði felist ekki bara gagnrýnin umræða um sann- gjarnar leikreglur heldur ekki síður um farsæld, verðmæti og gildismat í einstökum atriðum. Hagnýti og gagnrýni Hvernig ber þá að meta fullyrðingu Vilhjálms að siðfræðin eigi „einkum að skýra skilyrði þess að menn geti mótað eigið gildismat og komi sér saman um sanngjarnar leikreglur í samskiptum sínum“?8 Með öðrum orðum siðfræðin á ekki að segja mönnum til um farsæla breytni. Ef ég leyfi mér nú að gera það sem mér finnst ekki gert í bókinni að velta þess- ari skoðun fyrir mér fordómalaust, þá held ég að við höfum fjölmargar ástæður til að efast um að takmarka megi hlutverk siðfræðinnar með þessum hætti. Þessi lýsing fellir niður gagnrýnishlutverk siðfræðinnar og það held ég að sé varhugavert. Siðfræðin er nefnilega ekki bara tilraun til að búa til kerfi eða skýra forsendur þess að menn geti breytt rétt og þannig að til heilla horfi. Hún er ekki síður hörð og stundum niðursallandi gagnrýni á það sem við- gengst. Jafnvel þó að það sé útilokað að siðfræðingar geti sagt mönnum hvernig þeir eigi að lifa og haft meira til síns máls en hver annar, þá er siðfræðileg gagnrýni á þau gildi sem menn lifa eftir kannski mikilvæg- asti hluti siðfræðilegrar rökræðu. Siðfræðin hefur í gegnum tíðina gagnrýnt lífsgildi á ýmsum forsendum. Stundum vegna þess að menn séu ekki sjálfum sér samkvæmir, stundum vegna þess að þeir telji sig að- hyllast algild verðmæti en geri sér ekki grein fyrir aðstæðum þegar þeir neyðast til að hafna þessum verðmætum eða taka önnur fram yfir, stundum vegna þess að verðmæti stangist á án þess að menn átti sig á því. Svo má lengi telja. Nú færist mjög í vöxt að siðfræðingar sitji í allskonar nefndum og ráð- um og hjálpi fyrirtækjum og hinu opinbera við að taka ákvarðanir og 8 Vilhjálmur Árnason 1999, bls. 149. 94
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132

x

Hugur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Hugur
https://timarit.is/publication/603

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.