8 Hlln XII. Reikningar lesnir upp og samþyktir. XIII. Kosið i stjóm Sambandsins, Formaður, Halldóra Bjarnadóttir, endurkosin. Gjaldkeri, Sigríður Þorláksdóttir, Svalbarðsslrönd, cnd- urkosin. Ritari, lngibjörg Benediktsdóttir, Akureyri. Fundurinn endaði með veislufagnaði og ræðuhöldum. Vildu menn hittast, ef kringumstæður leyfðu, í Norður- Þingeyjarsýslu 1922. Sýslusambandsfjelag V.-Húnavatnssýslu hafði hjeraðs- sýningu á heimilisiðnaði á Hvammstanga seinni fundar- daginn. Sýningin var hin myndarlegasta og var sótt aí fjðlda manns (um 300). Halldóra Bjarnadóttir, fundarstjóri. JRannveig Lindal, ritari. Ferðalag um Vesturland sumarið 1921. Þegar jeg fór að gera áætlun um heimför frá land- sýningunni, kom mjer í hug, að gaman væri að geta um leið bundið enda á gamalt loforð um heimsókn hjá kvenfjelðgum á Vestfjörðum. Skipaferðir voru hentugar, svo ekkert var til fyrirstöðu. í flestöllum kauptúnum vestanlands eru kvenfjelög starfandi, sum 1015 ára gömul. Flest voru fjelögin stofnuð í þeim tilgangi að hjálpa og líkna fátækum og veikum og höfðu þau unnið þar