Hlín 11 þá frumvarp til laga um sýslufjelag og vildu að það kæmist sem fyrst upp. Frumvarpið er prentað í »Hlín« 1918. Petta hefur þó dregist af ýmsum ástæðum, eflaust hafa vorharðindin undanfarandi ár átt sinn þátt í því. í vor var útlit hið besta, veturinn hafði verið óvenjulega góður, svo allir voru í Ijettu skapi. Konurnar mæltu sjer því mót á Akureyri í því skyni að hleypa nú fjelaginu af stokkuhum. Nokkur fjelög höfðu samþ. að vera með og öll voru þau fús á að senda fulltrúa til skrafs og ráðagerða. En veðurblíðan brást okkur þann daginn og fáir urðu fulltrúarnir. Pó komst á samþykt um stofn- un fjelags, lög og stjórnarkosning. Kosningu hlutu: Guðrún Björnsdóttir, Siglufirði, Sólveig Pjetursdóttir, Völlum og Rósa Kristjánsdóttir, Jódisarstöðum. Pað verður gaman að lifa það, að margmennir fundir verða haldnir árlega einhversstaðar í sýslunni: t. d. á Akureyri, Siglufirði, Grund, eða Dalvík. Fjelagssvæði S. N. K. er svo stórt, að ekki er að búast við, að konur geti al- ment sótt þá fundi, en þessa fundi ættu eyfirskar kon- ur að geta sóít, Pá verður hægt að sameina sig um ýms framfaramál, er snerta hjeraðið í heild sinni eða konurn- ar sjerstaklega, konurnar fá tækifæri til að kynnast og æfast í víðtækari fjelagsskap og heilbrigð samkeppni kemur fram um að hafa eitthvað gott og gagnlegt að sýna og segja á hverjum stað: Fundarkona. Garðyrkja og skógrækt. » Skrúður.« Ritstj. »Hlinar« hefur mælst til þess, að jeg sendi henni nokkur orð um lítinn gróðrarreit hjer að Núpi. Vildi jeg verða við þeim tilmælum,' einkum af því að mjer er